Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
hæð

Laugarásvegur 65

104 Reykjavík

59.900.000 kr.

746.883 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2020191

Fasteignamat

68.800.000 kr.

Brunabótamat

40.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1955
svg
80,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 29. júní 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Laugarásvegur 65, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 29. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð með sér inngangi á jarðhæð að Laugarásvegi 65 í Reykjavík. Um þríbýli er að ræða í fallegri götu við Laugardalinn. Umhverfið er dásamlegt til útivistar og göngufæri er í Laugardalinn með öllu því sem hann hefur upp á að bjóða s.s. Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, sundlaug, líkamsræktarstöð, kirkju o.fl. Íbúðin er mjög björt, með gluggum til austurs og suðurs. Einnig er hún lítið niðurgrafin því halli er í lóðinni.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 80,2 m2.


*VINSAMLEGA SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
 
Smelltu hér og fáðu söluyfirlitið um hæl
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn um sér inngang. Náttúruflísar á gólfi. 
Hol er inn af fortofu og er gengið úr því inn í allar vistarverur íbúðar. Einnig er þar hurð til að fara inn í sameign.
Eldhús er með glugga til austurs. Hvít innrétting á einum vegg. Bakaraofn, helluborð og vifta. Gráar gólfflísar og hvítur sökkull og gólflistar.
Stofa björt með gluggum út í garð til suðurs. Parket á gólfi. Inn af stofu er herbergi. 
Herbergi I er inn af stofu. Parket á gólfi og gluggi til suðurs.
Herbergi II er innar í íbúðinni. Gluggar þar eru einnig til suðurs. Á teikningu er þetta rými einnig skráð sem stofa.
Baðherbergi er upprunalegt. Kýrauga með opnalegu fagi ofan við baðkar með sturtu. Salerni og vaskur. Ljósar flísar upp hluta veggja og gráar gólfflísar.
Þvottahús er í sameign á sömu hæð. Innangengt er úr íbúð inn í sameign. Hver hæð er með sínar vélar. Sér útihurð er úr þvottahúsi á austurgafli húss og því bæði aðkoma utan frá og inn af sameign.
Geymsla er innan íbúðar. Einnig er köld geymsla inn af þvottahúsi í séreign íbúðar.
Garður er gróinn. Íbúar fá aðkeyptan garðslátt.

Athugið að um dánarbú er að ræða og hvetja þinglýstir eigendur kaupanda til að skoða eignina vel.
Af bestu vitund þinglýstra eigenda var húsið málað fyrir um fimm árum og þakið málað fyrir um tíu árum. Skólplagnir voru endurnýjaðar fyrir um tveimur árum.
Ath. Hluti af innimyndum eru unnar með aðstoð gervigreindar og eru til að gefa fólki sýn á mögulegt skipulag á tómum eignum.

Fyrirhugað fasteignamat 2027: 68.850.000 kr.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone