Opið hús: Álfaskeið 37, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 201. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 30. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða 3ja herbergja efri hæð og útleigueiningu/studíóíbúð í kjallara í steinsteyptu húsi í nálægð við miðbæ Hafnarfjarðar.
Eignin er skráð þannig að íbúðin sjálf er 60,7 fm. Henni tilheyrir studíóíbúð í kjallara hússins, sem er alls 23,3 fm., alls 84 fm.
Nýlega var frárennsli endurnýjað. Fyrir afhendingu eignarinnar verður búið að skipta um rúður og listar endurnýjaðir eftir þörfum. Þessi framkvæmd er á kostnað seljanda.
Nánari lýsing:
Komið er inn um sameiginlegan inngang í snyrtilega sameign og gengið upp á efri hæð hússins, forstofa er fyrir framan innganginn í sjálfa íbúðina.
Gangur/hol með fataskáp tengir önnur rými íbúðarinnar.
Bjart og nýlegt eldhús er í rými sem áður var stofa - en með því fæst aukaherbergi og gott flæði milli eldhús, borðstofurýmis og stofunnar.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu, (frá árinu 2014-16) tengi fyrir uppþvottavél og góðum borðkrók/borðstofurými.
Stofan er hlýleg og björt með glugga til suðurs og góðri tengingu við eldhús/borðstofu.
Svefnherbergi eru nú tvö; hjónaherbergi með opnum fataskápum og minna herbergi á gangi sem hentar vel sem barnaherbergi eða heimaskrifstofa.
Baðherbergi hefur verið gert upp á smekklegan máta, upphengt salerni, sturtuaðstaða, handlaug og gluggi með opnanlegu fagi.
Í kjallara hússins, sem er með sér inngang, eru rými sem tilheyra hvorri hæð fyrir sig sem séreign.
Gott íbúðarherbergi/stúdíó í kjallara fylgir eigninni. Þar er ekki full lofthæð en ágætir gluggar. Rýmið hefur verið innréttað með lítilli eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Þar er salerni, handlaug og lítið baðkar/sturtuaðstaða ásamt glugga með opnanlegu fagi.
Tvö rými (Geymsla 00-02 og 00-03 á teikningu) voru sameinuð til að búa til studíóíbúðina. Eignin er með eignaskiptasamningi sem staðfestir skiptingu rýmanna í kjallara hússins en skráning séreignarfermetra í kjallara vantar inn í birta stærð eignarinnar eins og hún er skráð hjá Fasteignaskrá HMS í dag.
Í kjallaranum er jafnframt rúmgott, sameiginlegt þvottahús þar sem hvor íbúð hefur aðstöðu fyrir sína þvottavél.
Eignin er á frábærum stað i syðri enda Álfaskeiðsins og er steinsnar frá miðbænum.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected] og Arnþór Jónsson viðskfr. og lfs. í síma 663-3030 og netfanginu [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.