Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1957
141,5 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 30. júní 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Bólstaðarhlíð 31, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 30. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Lind Fasteignasala og Ómar Hvanndal löggiltur fasteignasali og lögmaður kynna : Glæsileg 4ra herbergja hæð við Bólstaðarhlíð 31 í Reykjavík með aukaíbúð. Eignin hefur verið endurnýjuð á afar vandaðan og sérlega smekklegan máta. Búið er að innrétta fallega stúdíóíbúð í hluta bílskúrs sem fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða [email protected].
*Aukaíbúð í bílskúr.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í parketlagt hol. Þar eru innfelldar sérsmíðaðar hillur með skrifborði sem setur svip sinn á rýmið.
Eldhús var nýlega endurnýjað að öllu leyti. Falleg grá innrétting með frontum frá HAF Studio. Á eldhúsbekk er stálborðplata með niðurfelldu helluborði. Stór eyja með hvítum marmara. Vönduð innfelld tæki í eldhúsi og má þar nefna stóran ísskáp og sér frysti undir eyju. Úr eldhúsi er gengið út á suðursvalir.
Stór og rúmgóð borðstofa með parketi á gólfi og björtum gluggum til suðurs.
Stofa með parketi á gólfi og gluggum í tvær áttir. Í stofu, borðstofu og eldhúsi eru nýjar Luxaflex gardínur.
Hjónaherbergi er stórt með parketi á gólfi og nýlega endurnýjuðum fataskápum.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi var nýlega endurnýjað að öllu leyti á afar smekklegan hátt. Gráar gólfflísar í bland við ljósar mósaíkflísar á veggjum. Flísalögð sturta með glerskilrúmi og innfelldum blöndunartækjum. Stór og falleg baðinnrétting með hillum og borðplötu úr ljósum marmara.
Stúdíóíbúð/bílskúr - Eigninni fylgir 24,8 fermetra bílskúr en búið er að breyta hluta bílskúrsins í afar snyrtilega og fullbúna stúdíóíbúð sem nýlega var innréttuð. Þar er ný eldhúsinnrétting með innfeldum ísskáp og þvottavél. Flísalagt baðherbergi með sturtu og salerni. Fremst í bílskúr er stúkuð af geymsla sem tilheyrir íbúðinni. Samhliða endurbótum á bílskúr var allt rafmagn endurnýjað ásamt vatns- og frárennslislögnum.
Á undanförnum árum hefur íbúðin gengið í gegnum gagngerar endurbætur og má þar meðal annars nefna :
Nýtt eldhús
Baðherbergi endurnýjað að öllu leyti
Vandað niðurlímt eikarparket frá Ebson á allri íbúðinni.
Allt rafmagn innan íbúðar endurnýjað.
Nýjar Luxaflex gardínur í alrými
Ásamt mörgu öðru.
Skráð stærð eignarinnar samkvæmt Fasteignaskrá HMS er 141,5 fermetrar en þar af er bílskúr 24,8 fermetrar.
Eigninni fylgir 3,9 fm geymsla í kjallara en þar er einnig sameiginlegt þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir:
Ómar Hvanndal hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 832-3200 / [email protected]
**Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma**
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2022
63.050.000 kr.
83.000.000 kr.
141.5 m²
586.572 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026