Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
raðhús

Hraunbraut Miðja 6

805 Selfoss

61.900.000 kr.

617.764 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2524692

Fasteignamat

52.600.000 kr.

Brunabótamat

54.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
100,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Nýtt glæsilegt raðhús að Hraunbraut 6, Borg í Grímsnesi.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Íbúðin er afhent fullbúin að innan sem utan með gólfefnum og lóð grófjöfnuð með tilbúnum ruslaskýlum. Stærð íbúðar er um 100 fm. 

Um eina af miðjuíbúðum í hússinu er að ræða.
 
Íbúðin er 4ra herbergja og skiptist upp í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, og opið rými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Innfeld lýsing í öllum rýmum. Útgengt í suðurgarð um svalahurð í stofu.

Einingarnar í raðhúsin eru smíðaðar af hinu rótgróna húsasmíðafyrirtæki SG hús á Selfossi, sem hefur yfir 50 ára reynslu í smíði húsa fyrir íslenskar aðstæður.
 
Vönduð eldhúsinnrétting og skápar frá HTH. Parket á gólfum, og flísar á baðherbergi.
 
Baðherbergið verður flísalagt með upphengdu salerni. Salerniskassinn verður innfeldur í vegg, sem gefur baðherberginu nútímalegt og stílhreint útlit. Innsteypt þröskuldarlaus sturta með öryggisgleri. Blöndunartæki af bestu gerð.     
 
Gólfhiti er í öllum rýmum, með hitastýringu fyrir sérhvert svæði. Vélrænt útsog er í rakarýmum og eldhúsi.
 
Klæðning hússins er vönduð lituð bárujárnsklæðning, og allir gluggar og útidyrahurð eru úr lituðu áli og gólfhiti er í botnplötu hússins.
 
Lóðin skilast grófjöfnuð, en gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum á lóðinni og ruslaskýli eru klár. Leiðslur til að tengja heitan pott verða til staðar, sem og fyrir garðkrana. 
 
Beint fyrir framan raðhúsið er glænýr leikvöllur.   
 
Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Í göngufæri er a finna sundlaug, leikskóla, grunnskóla, og þjónustu við eldri borgara. Ný verslun, bensínstöð og hleðslustöð fyrir rafbíla, líkamsræktarsalur og fleiri mannvirki eru ýmist í byggingu eða í undirbúningi. Enginn biðlisti er í leikskólann og grunnskólann, og mötuneyti sveitafélagsins sér ungviðinu fyrir hollum íslenskum þjóðarréttum. Sveitafélagið hefur ítrekað verið valið besta sveitafélag landsins í þjónustukönnunum. Svæðið er paradís fyrir útivistarfólk. Miklir atvinnumöguleikar á svæðinu.
 
Selfoss er í 15 mín akstursfjarlægð, og Reykjavík í u.þ.b. 45 mín akstursfjarlægð.
 
Frekari upplýsingar um svæðið og sveitafélagið má finna hér: https://www.gogg.is/

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / [email protected]
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Lifum Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. des. 2024
50.750.000 kr.
295.000.000 kr.
10102 m²
29.202 kr.
31. okt. 2023
4.410.000 kr.
177.000.000 kr.
501 m²
353.293 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Lifum Heima Fasteignasala

phone