Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Asparlaut 1

230 Reykjanesbær

97.900.000 kr.

616.499 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2529317

Fasteignamat

89.700.000 kr.

Brunabótamat

5.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
158,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir í sölu: Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð  í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi við Asparlaut 1 Hlíðahverfi í Reykjanesbæ.
Íbúð er merkt 05-01, fastanúmer: 252-9317. Alls skráð 158,8 m² íbúð á hæð er 140,6 m² og sérgeymsla í kjallara er skráð 18,2 m².  Stæði merkt B32 í bílageymslu fylgir. Afhending við kaupsamning eða í júlí 2026.
Aukin lofthæð er í íbúðum á 5 hæð.

--- SÝNUM SAMDÆGURS –-
Hafið samband við:  Sölva Þór Sævarsson lgfs, í s. 618-0064/ [email protected]
eða Gylfa þór Gylfason lgfs,  í síma 770-4040 / [email protected] 
 
 
Asparlaut 1- 5 eru ný 3-5 hæða fjölbýlishús með lyftu og sameiginlegri bílageymslu í nýju hverfi í Reykjanesbæ. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Arkitekt ARKÍS. 
Íbúðirnar eru 2ja til 6 herbergja íbúðir.  78,4 fm. til 240,6 fm.   Stæði í opinni bílageymslu fylgja flestum íbúðum.


Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með vönduðum innréttingum og fataskápum frá GKS. Flísar verða á baðherbergi og þvottahúsi en án annara gólfefna.
Íbúðirnar eru í nálægð við útivistar- og náttúrusvæði. Stutt í fallegar gönguleiðir þar sem hverfið er vel staðsett. Stutt er í stofnbrautir.
Afhendingartími: Íbúðirnar er tilbúnar til afhendingu í dag. 
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hér:   Asparlaut 1-5

Nánari lýsing
íbúð 05-01:


Anddyri: Fataskápar frá GKS, gólf án gófefna.
Eldhús/borðstofa og stofa: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki fylgja frá GKS. Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur frá Siemens. Virkilega bjart og fallegt rými með innbyggðri lýsingu í loftum, með dimmerum. 
Hjónaherbergi/svefnherbergi: Með sérsmíðuðum fataskápum/ fataherbergjum frá GKS.
Baðherbergi: Vandaðar flísar frá Flísabúðinni á gólfi og veggjum sem ná að lofti, innrétting frá GKS. Handlaugarskál með hitastýrðu blöndunartæki, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu. Sturta skilast með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhlið úr gleri.
Þvottahús: Gólf flísalagt, innréttingar frá GKS með skolvaski og blöndunartæki í borði. Niðurfall í gólfi, tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Geymslur: Geymsla í séreign sem fylgir íbúðinni, Rúmgóð vagna og hjólageymsla í sameign.

Næsta umhverfi: Umhverfið um eignina verður mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði. 
Íbúðirnar að Asparlaut 1-5 eru alls 59 talsins í þremur húsum og bynda skemmtilegan kjarna.  íbúðirnar eru  á verðbilinu 54.900.000 - 129.000.000. 

Yfirlit úr skilalýsingu:
- Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka
- Útihurðir frá Rational
- Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum
- Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni
- Póstkassar verða í stigahúsi
- Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone
- Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt
- Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni
- Þak er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.
- Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum
- Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.

Íbúðirnar skilast allar án gólfefna á alrýmum og herbergjum en með flísum á votrýmum. Að öðru leyti fullbúnar að innan með fullbúinni úti aðstöðu.

Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / [email protected] 
Gylfi þór Gylfason löggiltur fasteignasali. í síma 770-4040 / [email protected] 

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone