Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1991
114,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 2. júlí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Veghús 31, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 08 06. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg og mjög mikið endurnýjuð útsýnisíbúð ásamt stæði í bílageymslu í góðri lyftublokk í Grafarvogi. Um er að ræða íbúð á 8.hæð sem er skráð skv fmr.114,7fm og þar af er stæði í bílageymslu 13,5fm. Stórglæsilegt útsýni er frá íbúðinni og íbúðin nánast öll endurnýjuð 2019 m.a allar innréttingar, gólfefni, innihurðar og fleira. Árið 2025 voru lyftur hússins endurnýjaðar. Nýju lyfturnar eru stærri og hraðvirkari, auk þess að vera mikið hagkvæmari í rekstri, þá var einnig sameign á öllum hæðum máluð og skipt um teppi. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í forstofu með tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi. Á gangi samliggjandi forstofu er mjög góður og mikill fataskápur.
Stofa: Stofan er mjög björt og rúmgóð og með stórkostlegu útsýni m.a að Snæfellsjökli, Úlfarsfelli, Keili og yfir borgina út á sjó. Frá stofunni er gengið út á v/svalir.
Borðstofa: borðstofan er samliggjandi stofu og rúmar gott borðstofuborð.
Eldhús: Eldhúsið er fallegt og vel útbúið með dökkri innréttingu og með góðu skápaplássi. Ofninn er í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn fyrir ofan. Stækkað spanhelluborð, uppþvottavél er innbyggð og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Þvottahús: innaf eldhúsi er þvottahús með skáp og hillum.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö (voru áður 3 og hægt að breyta til baka) Bæði herbergin eru með harðparketi á gólfi og í hjónaherbergi eru miklir og góðir fataskápar.
Baðherbergi: Baðherbergið er glæsilegt og flísalagt í hólf og gólf og með hitaílögnum í gólfi. Stór sturta með glerskilrúmi, salerni er upphengt og falleg innrétting með skápum fyrir ofan og neðan vask. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Geymsla: við hlið íbúðar er sér geymsla með hillum sem fylgir eigninni.
Bílageymsla: Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu og er stæðið mjög vel staðsett í bílageymslunni og búið er að setja upp hleðslustöð við stæðið.
Yfirlit frá seljanda yfir endurnýjun á íbúð 806 árið 2019
Ný hurð fram á gang sameignar.
Allar hurðir innan íbúðar nýjar
Eldhús stækkað, og sett ný innrétting með nýjum tækjum (bakarofn, innbyggður örbylgjuofn, stórt span helluborð og uppþvottavél).
Baðherbergi endurnýjað með hita í gólfi, flísalögn í hólf og gólf, sturtuklefi í stað baðkars, ný innrétting, vaskur og nýtt veggfest klósett með innbyggðum klósettkassa og ný blöndunartæki.
Nýtt harðparket sett á alla íbúðina og þröskuldar fjarlægðir.
Nýir skápar settir um alla íbúð og skápapláss aukið mikið.
Rofar, rammar, innstungur og ljós endurnýjuð (öll með dimmer).
Raflagnir lagðar fyrir hleðslustöð í einkastæði (nr. 23) og stöðin sett upp.
Niðurlag: Þetta er glæsileg útsýnisíbúð á vinsælum stað í Grafarvogi þar sem örstutt er í golf, þjónustu og fallegar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. okt. 2024
65.950.000 kr.
45.570.000 kr.
10806 m²
4.217 kr.
21. maí. 2019
39.650.000 kr.
40.500.000 kr.
114.7 m²
353.095 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026