Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Langitangi 35B

270 Mosfellsbær

125.000.000 kr.

588.789 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2529372

Fasteignamat

29.800.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
212,3 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með bílskúr í byggingu við Langatanga 35A í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 212,4 m2, þar af er íbúðarhluti 189,8 m2 og bílskúr 22,6 m2. Á efri hæð húsins eru 15,0 m2 undir súð (undir 1,8 metrum) sem eru ekki í heildarfermetratölu eignarinnar þannig að íbúðarrýmið er um 204,8 m2 og bílskúrinn 22,6 m2.
Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda fokeld að innan en fullbúin að utan. Lóð skilast hellulögð og tyrfð. Snjóbræðsla er í hellulögðum stígum og bílaplönum. Um er að ræða afar spennandi hús staðsett miðsvæðis í Mosfellsbæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Skv. teikninum er gert ráð fyrir: Forstofu, gestasnyrtingu, þvottahúsi, eldhúsi, borðstofu, stofu og sjónvarpsholi sem hægt er að nýta sem herbergi á jarðhæð. Á efri hæð er gert ráð fyrir baðherbergi og fjórum svefnherbergjum. Innaf hjónaherbergi er gert ráð fyrir sér sturtu og salerni. Eigninni fylgir 24,4 m2 bílskúr og 6,0 m2 útigeymsla. 
Eignin er skráð 212,4 m2, þar af Íbúðarhluti er 183,8 m2, útigeymsla 6,0 m2 og bílskúr 22,6 m2.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Skilalýsing
Um er að ræða vandað og vel hannað staðsteypt hús með álklæðningu að utan ásamt fullfrágenginni lóð.
Utanhúss
Húsið skilast fullklárað að utan. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu.
Þak er hefðbundið sperruþak með öndunardúk og álklæðningu.
Gluggar og hurðir: Gluggar eru ál-/trégluggar með tvöföldu K-gleri. Inngangshurðir og svalahurðir eru úr áli og timbri, auk álrennihurðar út í garð. Bílskúrshurð er með rafmagnsopnun.
Lóð skilast hellulögð og tyrfð. Snjóbræðsla er í hellulögðum stígum og bílaplönum. Á lóðinni eru fullfrágenginn geymsluskúr og ruslageymsla.

Innanhúss
Að innan skilast húsið fokhelt með slípuðum steyptum veggjum og rörasladdaðri plötu.
Rafmagn og lagnir: Inntök fyrir vatn og rafmagn eru komin inn í bílskúr. Búið er að leggja inn steyptar rafmagns- og neysluvatnslagnir. Gert er ráð fyrir gólfhita í öllu húsinu. Gólfhitinn er lagður í plötu á jarðhæð en á efri hæð er hann lagður ofan á einangrun og flotað yfir.
Afhending og lokafrágangur lóðar: Húsið er til afhendingar samkvæmt samkomulagi og skal um það samið í kauptilboði. Afhending getur þó seinkað verði tafir vegna breytinga sem kaupandi óskar eftir á teikningum eða öðrum verkþáttum. Kaupendur taka við húsinu og geta hafið vinnu innanhúss þótt seljandi hafi ekki lokið klæðningu eða annarri utanhússvinnu við hús og garð.

Almennt
Verð miðast við framangreinda skilalýsingu. Mögulegt er að fá húsið lengra komið og tekur verð breytingum í samræmi við það. Allar tafir sem verða vegna breytinga að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma eignarinnar. Við afhendingu hússins verður gerð stöðuúttekt til að sannreyna ástand þess og þannig gera byggingarstjóra kleift að segja sig frá verkinu. Kaupendur þurfa þá að ráða nýjan byggingarstjóra og meistara sem taka við verkinu. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu eða timbri. Gera má ráð fyrir að kaupandi þurfi að endurmála þegar byggingarefni hafa náð stöðugu rakastigi og ástandi. Gatnagerðargjöld og byggingarleyfisgjald greiðast af seljanda. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt (0,3% af væntanlegu brunabótamati). Inntaksgjöld fyrir vatn og rafmagn greiðast af seljanda.

Verð kr. 125.000.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ