Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
hæð

Bergstaðastræti 9A

101 Reykjavík

169.500.000 kr.

1.153.061 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2005824

Fasteignamat

102.250.000 kr.

Brunabótamat

72.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1909
svg
147 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu bjarta og glæsilega 147,0 fermetra íbúð á tveimur hæðum með suðursvölum í mjög fallegu og virðulegu 5 íbúða húsi við Bergstaðastræti í Reykjavík.  

Eignin er mikið endurnýjuð hið innra í upprunalegum stíl, gluggasetning er mjög falleg, lofthæð aukin, gifslistar og rósettur í loftum, auk þess sem dyraumbúnaður er mjög fallegur.
Virkilega falleg upprunaleg furugólfborð eru á gólfum nánast allrar íbúðarinnar.


Lýsing eignar:
Forstofa, náttúruflísalögð og þaðan mjög fallegur viðarstigi upp á efri hæð íbúðarinnar.
Stigapallur / gangur, furugólfborð.
Fataherbergi, inn af stigapalli um rennihurð.
Hol, furugólfborð.
Borðstofa, björt og falleg með viðargólfborðum.
Eldhús, opið við borðstofu, furugólfborð og mjög fallegar nýlegar sérsmíðaðar innréttingar með flísum á milli skápa, viðarborðplötum, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti.
Skáli, furugólfborð.
Samliggjandi stofur, mjög bjartar og rúmgóðar með furugólfborðum og fallegri gluggasetningu. Tvöföld hurð er á milli stofa.

Gengið er upp á efri hæð íbúðarinnar um fallegan viðarstiga úr holi neðri hæðar:
Stigapallur / gangur, furugólfborð.
Barnaherbergi, stórt, furugólfborð og fallegt útsýni til vesturs.
Hjónaherbergi, stórt, furugólfborð. 
Fataherbergi, inn af hjónaherbergi, er með glugga og furugólfborðum.
Þvottaherbergi, með glugga á gafli og þakglugga, korklagt og rúmgott.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað og með glugga. Viðarklætt gólf og flísalagðir veggir að hluta, frístandandi baðkar og flísalögð sturta með sturtugleri.
Stofa, stór og björt með mjög mikilli lofthæð, fallegum viðarbitum í lofti og útgengi á svalir til suðurs með fallegu útsýni.

Risloft, sem gengið er á um fallegan viðarstiga úr stofu efri hæðar, er bæði með gaflglugga og þakglugga.

Húsið er virkilega fallegt og reisulegt bárujárnsklætt timburhús og lítur vel út að utan.

Húsið stendur á 693,0 fermetra fallegri og gróinni, afgirtri eignarlóð sem er sameiginleg með öllum eignarhlutum hússins. 
Skv. upplýsingum frá seljanda voru drenlagnir lagðar í kringum húsið í kringum árið 1980 og á sama tíma lagðar nýjar neysluvatnslagnir frá götu og inn í grind innan hússins.
Klóaklagnir frá húsi voru endurnýjaðar út í brunn við gafl Kramhússins á áttunda áratugnum og hafa verið í lagi.
Klóaklagnir innan hússins eru lagðar úr pottjárni.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone