Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2007
93,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Hjólastólaaðgengi
Lyfta
Opið hús: 5. júlí 2026
kl. 13:30
til 14:00
Opið hús: Sóleyjarimi 21, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 5. júlí 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
KRISTÍN EINARS. lögg. fasteignasali og DOMUSNOVA kynna:
Gullfallega og vel skipulagða íbúð á jarðhæð með stórum afgirtum palli í Sóleyjarima 21, 112 R.
Eignin er 3ja herbergja og samkv. HMS skiptist hún í 88,4 fm íbúð og 9 fm geymslu.
Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Stór pallur í suðurátt.
Sér geymsla í kjallara.
Íbúðir í Sóleyjarima 21 eru fyrir 50 ára og eldri.
Húsbyggingin er vönduð og með viðhaldslitlu ytra byrði.
Sameignin afar snyrtileg.
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög rúmgóð með góðu skápaplássi, m.a. skóskáp. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa eru í opnu rými þaðan er útgengi í suðurátt á steyptan pall með svalalokun, þaðan er gengið út á rúmgóðan pall með skjólveggjum auk geymsluskúrs.
Hægt er að ganga út af pallinum í gegnum hlið sem snýr út að bílastæðum.
Eldhús er tengt við opna rýmið. Fallegar eikarinnréttingar með miklu skápaplássi. Ljósar kvarssteins borðplötur.
Ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum.
Svefnherbergi: með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Falleg eikarinnrétting með góðu geymslurými og Kvarssteinn á borðplötu. Sturtuklefi. Handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Innrétting með vaski og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Sólbekkir í íbúð úr ljósum kvarssteini.
Eikarparket er á öllum gólfum nema annað sé tekið fram.
Í sameign er sér 9fm geymsla með hillum.
Hjólageymsla á jarðhæð.
Tvær hleðslustöðvar á bílastæðum.
Húsið er steypt, klætt að utan með viðhaldsléttri álklæðningu, lóðin er frágengin, bílaplan malbikað og allt umhverfi snyrtilegt.
Stutt er í alla helstu þjónustu í Spönginni, félagsstarf og þjónustu fyrir eldri borgara, golfvöll, fallegar gönguleiðir og íþróttamiðstöð.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Gullfallega og vel skipulagða íbúð á jarðhæð með stórum afgirtum palli í Sóleyjarima 21, 112 R.
Eignin er 3ja herbergja og samkv. HMS skiptist hún í 88,4 fm íbúð og 9 fm geymslu.
Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Stór pallur í suðurátt.
Sér geymsla í kjallara.
Íbúðir í Sóleyjarima 21 eru fyrir 50 ára og eldri.
Húsbyggingin er vönduð og með viðhaldslitlu ytra byrði.
Sameignin afar snyrtileg.
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög rúmgóð með góðu skápaplássi, m.a. skóskáp. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa eru í opnu rými þaðan er útgengi í suðurátt á steyptan pall með svalalokun, þaðan er gengið út á rúmgóðan pall með skjólveggjum auk geymsluskúrs.
Hægt er að ganga út af pallinum í gegnum hlið sem snýr út að bílastæðum.
Eldhús er tengt við opna rýmið. Fallegar eikarinnréttingar með miklu skápaplássi. Ljósar kvarssteins borðplötur.
Ísskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum.
Svefnherbergi: með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Falleg eikarinnrétting með góðu geymslurými og Kvarssteinn á borðplötu. Sturtuklefi. Handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Innrétting með vaski og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Sólbekkir í íbúð úr ljósum kvarssteini.
Eikarparket er á öllum gólfum nema annað sé tekið fram.
Í sameign er sér 9fm geymsla með hillum.
Hjólageymsla á jarðhæð.
Tvær hleðslustöðvar á bílastæðum.
Húsið er steypt, klætt að utan með viðhaldsléttri álklæðningu, lóðin er frágengin, bílaplan malbikað og allt umhverfi snyrtilegt.
Stutt er í alla helstu þjónustu í Spönginni, félagsstarf og þjónustu fyrir eldri borgara, golfvöll, fallegar gönguleiðir og íþróttamiðstöð.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. ágú. 2013
21.950.000 kr.
24.000.000 kr.
93.4 m²
256.959 kr.
6. júl. 2007
9.200.000 kr.
21.000.000 kr.
93.4 m²
224.839 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026