Lýsing
Miklaborg kynnir: ÞÍN LEIÐ AÐ NÝRRI ÍBÚÐ - AÐEINS 10% ÚTBORGUN UMBRA20
Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.
Íbúð 413 er 3ja herbergja vel skipulögð íbúð á 4. hæð með svölum og bílastæði í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Góð 3ja herbergja íbúð. Litaþema er Dökk eik. Íbúðin afhendist fullbúin án megin gólfefna.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.
Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
Sjá nánar www.eirhofdi.is
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða [email protected]
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Tvö svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á svalir er snúa í vestur.
Baðherbergi: Með sturtu með Unidrain línurist og sturtugleri. Vegghengd salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Geymsla: er 13 fm.
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B30
Nánari upplýsingar veita
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða [email protected]
Íris Anna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða [email protected]
Friðjón Örn Magnússon í síma 692-2704 eða [email protected]