Lýsing
Miklaborg kynnir: Frábær jarðhæð með sérinngangi í suðurhlíðum Reykjavíkur. Vistvæn gata, rólegt umhverfi og stutt í bæði skóla sem samgöngur. Björt íbúð með fallegri eldhúsinnréttingu, endurnýjuðu baðherbergi og þrjú góð svefnherbergi. Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða [email protected] og Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísalagt gólf og fataskápar með stórri spegilhurð.
Eldhús: Falleg nýleg hvít innrétting með eldunareyju þar sem er helluborð með hangandi háf yfir, góð tæki, gott skápapláss og góð lýsing. Heimilistæki nýleg.
Stofa: Björt stofa með stórum gluggum er vísa í suður. Fallegt nýtt parket á gólfum eins og annars staðar í íbúð.
Svefnherbergi: Þrjú talsins þar af hjónaherbergi með stórum fataskáp með spegla rennihurðum ásamt tveimur rúmgóðum barnaherbergjum.
Baðherbergi: Endurnýjað frá grunni þar sem skipt var um flísar, blöndunartæki og allar innréttingar.
Þvottahús: Innan íbúðar, flísalagt og stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skápum.
Geymsla er undir tröppum að efri hæð, utangengt.
Sameiginlegur garður með góðum grasbletti bakatil og gott pláss fyrir framan íbúð sem er hellulögð og með skjólgirðingu.
Innihurðar ásamt gólfefni hafa nýlega verið endurnýjuð.
Frábær íbúð fyrir vaxandi fjölskyldu sem vill vera í vistvænu rólegu hverfi þaðan sem stutt er í skóla, samgöngur og leiksvæði.
Nánari upplýsinga veita Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða [email protected] og Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða [email protected]