Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1961
svg
59,4 m²
svg
3 herb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Háborg fasteignasala og Þórunn Pálsd lgf  kynna: Fallega endurnýjaða 3ja herb. risíbúð með tveimur svefnherbergjum, glæsilegu eldhúsi og fallegu útsýni. Þríbýli, sameiginlegur inngangur með miðhæð.   Frábært skipulag og hönnun   þar sem hver fermetri nýtist vel og  eins eru margir súðarfermetrar til viðbótar við birt flatarmál. Húsið og Íbúðin hafa  verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.    Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]

Komið er í forstofu með góðu skápaplássi, á vinstri hönd er hjónaherbergið  með glæsilegum opnum fataskápum á tvo vegu auk súðarskápa.
Í miðri íbúðinni er glæsilegt alrými sem telur eldhús með góðu útsýni til norðurs að Esjunni og víðar. Eldhúsið var endurnýjað árið 2023 með nýrri innréttingu og raftækum,  aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara  einnig handklæðaofn. Gott skápapláss og borðpláss. Eldhúsið rennur saman við stofuna sem er rúmgóð og falleg. Næst er gott baðherbergi með sturtu hirslum og opnanlegum glugga.  Þá er hitt herbergið sem er rúmgott með útgengi á vestursvalir, innbyggðu skrifborði og góðum skápum. Árið 2023 var  lagt nýtt harðparket á alla íbúðina, að baðherbergi undanskildu og íbúðin öll máluð.

Árið 2016 var þakið mikið  endurnýjað þar sem skipt var um bárujárn, skemmt timbur endurnýjað, lagt nýtt þakpappaefni, nýjar þakrennur og niðurföll sett upp auk þess sem kvistir og skorsteinn voru klæddir upp á nýtt. Árið 2019 voru allir gluggar á rishæð ásamt svalahurð endurnýjuð, húsið viðgert, málað og útitröppur endurnýjaðar. Árið 2021 var skipt um glugga í sameign og árið 2022 voru skólplagnir endurnýjaðar auk þess sem dren var fullklárað umhverfis húsið.
Árið 2025 var hitakerfi hússins bætt með nýjum þrýstijafnara, skipt um pakkdósir og hitanema og nýr ofn settur upp í stofu.

Einstaklega falleg og vel hönnuð  eign á þessum  vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. 
Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali
s: 773-6000 og  [email protected]

 

img
Þórunn Pálsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. sep. 2022
36.750.000 kr.
48.000.000 kr.
59.4 m²
808.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík