Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
einbýlishús

Bakkatröð 7 Hrafnagili

605 Akureyri

114.900.000 kr.

668.801 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2338693

Fasteignamat

93.350.000 kr.

Brunabótamat

103.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2017
svg
171,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Bakkatröð 7 - Eyjafjarðarsveit.               Laus fljótlega 

Nýlegt og glæsilegt einbýlishús á stórri lóð við Bakkatröð á Hrafnagili, Eyjafjarðarsveit samtals 171,8 m².

Eignin skiptist í forstofu, alrými með stóru eldhúsi og góðri stofu, þaðan er útgengi út á suður verönd. Svefnherbergin eru fjögur, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi, bæði með sturtu og baðkari, þvottahús með góðu skápaplássi og innangengt inn í bílskúrinn.
Bískúrinn er rúmgóður með geymslurými í austur enda, þar er einnig gert ráð fyrir að sett verði upp snyrting, útgönguhurðir eru til austurs og vesturs og rafdrifin innkeysluhurð til vesturs.


Nánari lýsing;
Forstofa,  flísar á gólfi, fatahengi.
Eldhús/borðstofa, rúmgóð, hvít, háglans innrétting með dökkum granít bekkjarplötum, nýjar skápa-framhliðar settar í júní 2026. Rúmgóð eyja með skúffum. Uppþvottavél og ísskápur og fylgja með við sölu eignar.
Úr borðstofu gengið út á steypta suður verönd með timbur  skjólveggjum, tengi fyrir heitan pott, úti-eldunaraðstaða, innbyggt grill fylgir með við sölu. hitalagnir eru tilbúnar í öllum steyptum stéttum en eru ótengdar.
Stofa, eldhús og borðstofa eru í opnu rými, harðparketi  á gólfi, innfelld lýsing í lofti og gluggar á þrjá vegu.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með harðparketi á gólfi, innfelld lýsing í loftum, hvítir fataskápar í öllum herbergjum, stórir og góðir fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með dökkum bekkjum, vegghengt wc, baðkar og sturta (veggir í sturtu eru hlaðnir). Nýjar skápaframhliðar júní 2026.
Þvottahús er með flísum gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúrinn. Steypt gólf, útgönguhurð til vesturs og rafdrifin innkeyrsluhurð.
Geymsla er í austurenda bílskúrs, þar eru steypt gólf, vatnslagnir eru til staðar til að setja upp snyrtingu, frárennsli er rétt utan við útvegginn. Útgönguhurð til austurs.

Annað;
-
Innveggir eru tvöfaldir, spónaplötur og gips.
- Hiti í gólfum
- Aukin lofthæð er í húsinu.
- Vandaðar innréttingar frá TAK.
- Stór, steypt verönd með timburskjólveggjum, útieldhús með grillaðstöðu og gert er ráð fyrir heitum potti, lagnir til staðar.
- Búið er að leggja hitalangir í steyptar stéttar, lokað kerfi í verönd og stétt fyrir framan hús, ótengt.  
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Háaloft er yfir húsi sem nýtist sem geymsla sem er 40 m2, loftið er klætt innan með spónaplötum.
- Fjölskylduvænt umhverfi, leikskóli og skóli, tónlistarskóli og íþróttaaðstaða ásamt sundlaug í tveggja mínútna fjarlægð.

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671    / [email protected]
Tryggvi          s: 862-7919   / [email protected]
Arnar             s: 898-7011   / [email protected]

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone