Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2013
131,3 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 7. júlí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum í íbúð 208
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Björt og falleg fimm herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu lyftuhúsi í Sjálandi. Húsið stendur á eftirsóttum stað við ylströndina og í færi við frábærar gönguleiðir, náttúruna og leiksvæði. Vandaðar innréttingar frá Brúnás og rúmgóðar, sólríkar suðursvalir. Húsið er reist af BYGG árið 2013. Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu. Frábær fjölskyldueign þar sem bæði skóli og leikskóli er í göngufæri.Nánari upplýsingar: Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu í sameign auk stæðis í bílageymslu. Birt flatarmál eignarinnar er 131,3 fm, þar af er íbúðin 121,9 fm og geymslan 9,4 fm.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Góður fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Eldhús er opið við stofu og borðstofu. Falleg, sprautulökkuð eldhúsinnrétting og eyja frá Brúnás, steinn á borðum, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Helluborð er á eyju og rými er fyrir ísskáp. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgott, opið og bjart rými. Parket á gófli. Útgengt út á 10,7 fm sólríkar svalir sem vísa til suðurs. Möguleiki á svalalokun.
Sjónvarpshol/herbergi: Gott sjónvarpshol með parketi á gólfi og góðum glugga. Er herbergi skv. teikningu og er mjög auðvelt að bæta fjórða svefnherberginu við.
Hjónaherbergi 1: Rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting, stór walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Innan íbúðar. Flísar á gólfi og hvít innrétting með vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Ágæt 9,4 fm geymsla er staðsett í sameign hússins.
Bílageymsla: Gott stæði fylgir íbúðinni í lokaðri, upphitaðri bílageymslu. Stæði merkt #22. Búið er að leggja stofnlögn fyrir rafhleðslu í bílageymslu. Því er einfalt að tengja hleðslustöð í stæði.
Sameign: Mjög snyrtileg og vel um gengin.
Lóð: Lóðin, sem er falleg og gróin er sameiginleg með Löngulínu 15-23.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali, sími: 649-3868 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. okt. 2016
44.250.000 kr.
54.800.000 kr.
131.3 m²
417.365 kr.
6. jún. 2013
35.050.000 kr.
42.000.000 kr.
131.3 m²
319.878 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026