Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Stefán Ólafsson
Friðrik Halldór Brynjólfsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
125,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu:

Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina:


Domus Fasteignasala hefur fengið til sölu fallega og vel skipulagða efri sérhæð í tvíbýlishúsi á eftirsóttum stað á Kársnesi í Kópavogi. Um er að ræða bjarta og rúmgóða eign með fallegu útsýni til suðurs og rúmgóðum bílskúr. Húsið og íbúðin hafa fengið mikið og gott viðhald í gegnum tíðina.

Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 125,3 fm, þar af er bílskúrinn 25,1 fm. Íbúðin er þriggja herbergja og möguleiki er á að útbúa þriðja svefnherbergið í hluta stofunnar.

Nánari lýsing

Aðkoma að eigninni er góð. Gengið er inn um sameiginlegan inngang með neðri hæð hússins og þaðan upp teppalagðan stiga að íbúðinni.

Á stigapalli er fatahengi og þaðan er útgengt á suðursvalir. Stigapallurinn er hluti af skráðu flatarmáli íbúðarinnar. Yfir stigapallinum er háaloft sem nýtist vel til geymslu.

Hol er rúmgott og tengir helstu rými íbúðarinnar saman. Parket er á gólfi.

Eldhúsið er stórt og bjart með viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og rúmgóðu vinnusvæði. Flísar eru á gólfi og milli efri og neðri skápa.

Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús ásamt geymslu.

Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, með stórum gluggum til suðurs og vesturs. Parket er á gólfi. Möguleiki er á að útbúa þriðja svefnherbergið í hluta stofunnar, eftir þörfum.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott og með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum beggja herbergja.

Baðherbergið er flísalagt og búið stórum sturtuklefa og upphengdu salerni.

Bílskúr og bílastæði

Eigninni fylgir 25,1 fm bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð. Bílskúrinn er rúmgóður og þar er bæði heitt og kalt vatn.

Rúmgóð bílastæði eru næg við húsið

Garður og útisvæði

Sunnan við húsið er gróinn og skjólsæll garður sem er sameiginlegur með neðri hæð hússins.

Árið 2023 var sameiginlegum geymsluskúr komið fyrir á lóðinni ásamt sólpalli.

Viðhald og endurbætur

Húsið, íbúðin og bílskúrinn hafa fengið gott og reglulegt viðhald í gegnum tíðina. Helstu framkvæmdir og endurbætur eru eftirfarandi:

2004: Skipt um stofuglugga á suðurhlið.
2014: Baðherbergi endurgert og skipt um glugga á baðherbergi.
2015: Fráveita endurnýjuð út í götu.
2016: Skipt um glugga á austurhlið hússins.
2016: Þak hússins yfirfarið og lagfært. Skipt var um þakjárn, þakpappa, þakrennur og niðurföll.
2017: Húsið klætt að utan.
2020: Neysluvatnsheimæð endurnýjuð frá stofnlögn í götu og inn í hús, auk lagnar frá húsinu að bílskúr.
2022: Þak bílskúrsins endurnýjað og hækkað. Bílskúrinn var jafnframt klæddur og einangraður að utan.
2022: Dren við norður-, austur- og suðurhlið hússins endurnýjað og tengt við nýjan brunn sunnan við húsið.
2022: Skipt um svalahurð íbúðarinnar.
2023: Sameiginlegur geymsluskúr settur upp á lóðinni ásamt sólpalli.
2024: Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjuð í íbúð og bílskúr.

Auk framangreinds hefur nýlega verið skipt um þrjá ofna í íbúðinni og samið um að mála þak hússins í júlí eða ágúst 2026.

Staðsetning

Eignin er staðsett á eftirsóttum stað á Kársnesi í Kópavogi. Í nágrenninu eru leik- og grunnskólar, verslun, þjónusta, sundlaug, íþróttaaðstaða og fjölbreytt útivistarsvæði. Góðar göngu- og hjólaleiðir liggja um Kársnesið og greiður aðgangur er að helstu samgönguleiðum.

Hér er um að ræða fallega og vel viðhaldna efri sérhæð með bílskúr og suðursvölum. Eignin býður upp á björt og rúmgóð rými, gott geymslupláss og möguleika á þriðja svefnherbergi á eftirsóttum stað á Kársnesi.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 [email protected],  Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 [email protected] og Sigurður Pétur Stefánsson s 698-6971 [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 71.920 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Stefán Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domus Fasteignasala
Þverbraut 1, 540 Blönduósi
Domus Fasteignasala

Domus Fasteignasala

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
phone
img

Stefán Ólafsson

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
Domus Fasteignasala

Domus Fasteignasala

Þverbraut 1, 540 Blönduósi
phone

Stefán Ólafsson

Þverbraut 1, 540 Blönduósi