Opið hús: Kjarrhólmi 22, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Björt, falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja útsýnisíbúð á annarri hæð (merkt 202) í Kjarrhólma 22. Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og geymslu í kjallara. Íbúðarrými er skráð 89,4 fm af HMS en til viðbótar er 9,3 fm sérgeymsla íbúðar í kjallara. Heildarstærð er því 98,7 fermetrar. Stutt í helstu þjónustu m.a. skóla, nokkra leikskóla auk þess sem eignin stendur við Fossvoginn og því stutt í útivistarsvæði bæði þar og í Elliðaárdal. Mikil veðursæld er á þessu svæði og er eignin staðsett í botnlanga þannig að óviðkomandi umferð er nánast engin, nóg af bílastæðum. Húsið var hannað af Kjartani Sveinssyni.
Nánari lýsing:
Gengið inn í anddyri íbúðar um snyrtilega, teppalagða sameign.
Stofa íbúðar er rúmgóð og björt, með stórum gluggum til norðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir Fossvogsdalinn og Esjuna.
Endurnýjað harðparket á allri íbúð, utan baðherbergis og þvottahúss.
Mjög snyrtilegt eldhús með góðu skápaplássi og stórum búrskáp. Ofn endurnýjaður 2022.
Svefnherbergi íbúðar eru þrjú; hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á stórar og skjólgóðar svalir til suðurs. Annað barnaherbergjanna er með glugga til suðurs og fataskáp en þriðja svefnherbergið er á milli stofu og eldhúss og er með glugga til norðurs.
Baðherbergi íbúðar er endurnýjað, flísalagt og er með innréttingu og baðkari með sturtuhaus. Innan íbúðar er þvottahús í sérrými.
Í kjallara er hjólageymsla, þurrkherbergi og sérgeymsla íbúðar með glugga.
Á bak við hús er stór sameiginlegur garður með leiktækjum.
* Umfangsmiklar framkvæmdir hafa verið á heildarhúsinu:
Á undanförnum árum hafa öll þök í lengjunni verið lagfærð, yfirfarin og/eða endurnýjuð, gluggaskipti á suður- og norðurhlið eftir þörfum, múrviðgerðir á öllu húsinu og málun sem gert er ráð fyrir að ljúki í ágúst 2026. Árið 2023 voru allar svalir hússins slípaðar og sett á þær epoxy. Seljendur greiða áætlaðan kostnað íbúðar vegna yfirstandandi framkvæmda.
Um er að ræða góða og vel skipulagða eign á eftirsóttum og rólegum stað við útivistarparadísina Fossvogsdalinn. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.