Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
einbýlishús

Skagasel 5 - Aukaíbúð

109 Reykjavík

209.900.000 kr.

681.051 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2054269

Fasteignamat

166.050.000 kr.

Brunabótamat

160.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
308,2 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Skagasel 5, 109 Reykjavík.

Glæsilegt og vel skipulagt 7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum við Skagasel 5. Eignin er skráð 308,2 fm og að auki er rúmlega 20 fm sólstofa utan skráðrar fermetratölu. Húsinu fylgir innbyggður bílskúr og afar fallegur, gróinn garður með tjörn, sólpalli og góðri aðstöðu til útiveru. Auk þess fylgir húsinu 2ja herbergja íbúð sem er í útleigu og skilar góðum leigutekjum.

Skráð stærð 308,2 fm.

Helstu atriði
  • Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum.
  • 4 svefnherbergi
  • Skráð 308,2 fm auk rúmlega 20 fm sólstofu / garðstofu.
  • Tveggja herbergja aukaíbúð með sérinngang með góðum leigutekjum.
  • Innbyggður bílskúr og einstaklega gróinn verðlauna garður með tjörn og sólpalli. 

Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]



Nánari lýsing
Við Skagasel 5 er að finna þetta rúmgóða og vel skipulagða 7 herbergja einbýlishús á góðum stað við rólega götu. Komið er inn í rúmgott anddyri með góðum skápum og þaðan tekur við eign með góðu flæði og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Í aðalrými hússins eru samliggjandi stofa og borðstofa í stóru og björtu rými með arni og aukinni lofthæð sem gefur heimilinu hlýlegt og notalegt yfirbragð. Eldhúsið er með fallegri mahonýinnréttingu og inn af því er búr með góðu skápaplássi. Á aðalhæð eru einnig  3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með góðri aðstöðu.
Frá þvottahúsi er gengið í rúmgóða sólstofu / garðstofu með kamínu og hita í gólfi. Þaðan er útgengt á stórar flísalagðar suðursvalir og niður í einstaklega fallegan og gróinn garð þar sem sólpallur liggur umhverfis litla tjörn. Garðurinn er einn af helstu kostum eignarinnar og skapar fallega umgjörð um húsið.
Á neðri hæð er tveggja herbergja íbúð með sérinngangi sem er í útleigu og skilar góðum leigutekjum. Sú nýting eykur notagildi eignarinnar og getur hentað vel fyrir fjölskyldu sem vill sameina eigin búsetu og auknar tekjur. Geymslupláss er gott í húsinu og tveir geymsluskúrar eru á lóð ásamt kaldri geymslu. Á neðri hæð er stórt svefnherbergi með fataherbergi. Gestasnyrting er einnig á neðri hæð.

Hér er um að ræða einstakt einbýlishús þar sem stærð, skipulag, útisvæði og tekjumöguleikar fara vel saman.




www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. ágú. 2019
90.000.000 kr.
102.000.000 kr.
308.2 m²
330.954 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík