Opið hús: Skólavellir 8, 800 Selfoss, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 15:30 og kl. 16:00.
Lýsing
Björt og mikið endurnýjuð íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í hjarta Selfoss.
Heildarstærð eignarinnar er 155,7 fm, þar af 33,8 fm bílskúr. Í bílskúrnum hefur verið útbúið íbúðarrými sem hefur verið í útleigu undanfarin ár.
Íbúðin skiptist í forstofu, endurnýjað eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi og endurnýjað baðherbergi. Gólfefni eru flísar og parket nema á stigagangi er teppi.
Söluyfirlit má nálgast hér Söluyfrlit
Eldhús og baðherbergi endurnýjuð árið 2019.
Þak endurnýjað árið 2022.
Skólplagnir árið 2024.
Athugið að myndirnar innandyra eru betrumbættar með Ai.
Frábærlega vel staðsett eign miðsvæðis á Selfossi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verlsanir, skóla og leikskóla.
Rólegt íbúðahverfi sem hentar vel fyrir fjölskyldur. Stutt í útivistarsvæði og gönguleiðir við Ölfusá.
Góðar samgöngur og aðeins um 45–50 mínútna akstur til Reykjavík.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.