Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
137,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 13. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Langalína 14, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Langalína 14 í Garðabæ - Glæsileg 4ra herbergja útsýnisíbúð alveg við sjóinn með tveimur veröndum og sérstæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 137,9 fermetra 4ra herbergja íbúð með glæsilegu útsýni út á sundin, tveimur veröndum og bílastæði í bílakjallara við Löngulínu 14 í Garðabæ. Vandað og fallegt lyftuhús sem er byggt árið 2007. Íbúðin er einstaklega vel staðsett í húsinu, alveg við sjóinn þar sem óskert útsýni er út á sundin. Búið er að endurnýja baðherbergi og eldhús að hluta á afar smekklegan máta. Þvottaherbergi er inn af íbúð og stór 12,1 fermetra geymsla í kjallara.

Um er að ræða virkilega glæsilega íbúð á eftirsóttum stað í Sjálandi í Garðabæ. Lóðin er virkilega falleg og vel viðhaldin með hellulögðum stéttum með snjóbræðslu, tyrfðum flötum og malbikuðum gestastæðum fyrir framan hús. 

Um er að ræða frábæra staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlæð. Jónshús, félagsmiðstöð fyrir eldri borgara í göngufjarlægð. 


Nánari lýsing: 
Forstofa: Með parketi á gólfi og góðum skápum.
Hol/gangur: Með parketi á gólfi. 
Stofa: Er stór með parketi á gólfi og góðum gluggum til austurs með glæsilegu útsýni út á sundin. Stofa er opin við eldhús og rúmar vel setustofu og borðstofu.Útgengi frá stofu á verönd til suðurs og einnig verönd til norðurs.
Eldhús: Var endurnýjað að hluta árið 2019. Virkilega smekklegt og tímalaust eldhús með parketi á gólfi. Falleg HTH eldhúsinnrétting með kvartz steini frá Steinprýði á eldhúsborðum. Samsung bakaraofn, AEG spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Undirfelldur vaskur, lýsing undir efri skápum og gluggi til norðurs.
Verönd I: Snýr til norðurs og er útgengi frá eldhúsi/borðstofu. Fallegt útsýni út á sundin og tilvalin verönd fyrir grillið.
Verönd I: Snýr til suðurs og er útgengi frá stofu. Glæsilegt útsýni út á sundin og stendur verönd í góðu skjóli frá húsinu.
Baðherbergi: Var endurnýjað 2022 á virkilegan fallegan máta. Gólfhiti í gólfi. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili og baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Rúmgott með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara (hækkun undir vélar), vinnuborð og hillur.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með parketi á gólfi, skápar og gluggi til suðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til suðurs.

Sérstæði í bílakjallara: Er breitt og er merkt 01B02 (102). Rafhleðslustöð fylgir bílastæði. Snyrtilegur og lokaður bílakjallari.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er 12,1 fermetrar. Nýlega búið að mála gólf og veggi.

Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum á gólfi. Auk þess er sameiginleg geymsla fyrir húsin í kjallara.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected]

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. des. 2016
45.150.000 kr.
56.000.000 kr.
137.9 m²
406.091 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone