Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skipalón 24

220 Hafnarfjörður

107.900.000 kr.

843.628 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2291362

Fasteignamat

93.600.000 kr.

Brunabótamat

75.480.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
127,9 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Falleg 127,9 fm 4ra herbergja útsýnis íbúð með tveimur baðherbergjum og tvennum svölum. Íbúðin er merkt 02-05 í vönduðu álklæddu lyftuhúsi fyrir 50 ára og eldri á frábærum stað í Hafnarfirði. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og rúmgóð sérgeymsla. Vandaðar innréttingar frá Brúnás. Parket og flísar á gólfum. Útsýnið er einstaklega fallegt allt frá Akrafjalli í norðri að Snæfellsjökli í vestri.

Íbúðin er merkt 02-05.  Íbúðin er skráð 120,7 fm og sérgeymsla í sameign merkt 0108 er skráð 7,2 fm. Birt heildarstærð er því 127,9 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt B -33 .
Eignin skiptist í forstofu/hol, 3 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús, tvö baðherbergi, tvennar svalir, sérgeymslu og bílageymslu.

Nánari lýsing eignarinnar:
Íbúðin er á annarri hæð, sameiginlegur inngangur og lyfta.
Forstofa er með parketi og fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi inn af forstofu er flísalagt á gólfi og upp veggi. Innrétting er við vask og sturtuklefi. Innaf baðherbergi er sérþvottahús með innréttingu og vaski.
Rúmgott alrými íbúðar sem nær í gegnum íbúðina er parketlagt og með vandaðri innréttingu í eldhúsi. Stór eldaeyja og er steinn á borðum. Gengið úr eldhúsi á norðaustursvalir með glæsilegu útsýni. Viðbótarinnréttingu var bætt við eldhús við svalaútgang. Um er að ræða skáp og búrskáp. Brúnás smíðaði í sama við og er steinn á borði.
Stofan er rúmgóð og parketlögð. Gengið er út á góðar svalir í suðvestur með glæsilegu útsýni yfir m.a golfvöll, flóann og allt að snæfellsjökli i vestri. Svalalokun er á þessum svölum.
Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum skápum. Innaf herberginu er flísalagt baðherbergi með baðkari og innréttingu við vask.
Aukaherbergin eru tvö og eru þau innaf stofu. Þau eru bæði parketlögð og með fataskápum sem ná upp í loft. 


Í snyrtilegri sameign er rúmgóð sérgeymsla íbúðarinnar og innangengt er í bílageymslu þar sem íbúðin á sérmerkt bílastæðí. Mjög góð staðsetning í vönduðu húsi. 

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. maí. 2007
27.410.000 kr.
31.500.000 kr.
127.9 m²
246.286 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík