Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Laugaból 2

641 Húsavík

49.500.000 kr.

775.862 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2517860

Fasteignamat

33.150.000 kr.

Brunabótamat

53.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
63,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Laugaból 2 í Reykjadal - Nýlegt 3ja herbergja einbýlishús/heilsárshús á 9.661 m² eignarlóð - stærð 63,8 m² að auk svefnlofts og geymsluskúrs.


Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt svefnlofti. 

Forstofa er með ljósum parket flísum frá Vídd.
Eldhús og stofa er í alrými þar sem loft eru tekinu upp. Falleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu. Gott skúffu- og bekkjarpláss. Vönduð eldhústæki s.s. Siemens gufuofn, Siemens innbyggður örbylgjuofn og Miele helluborð. WiFi stýring er á ljósum í alrými. Útgangur er á rúmgóða verönd úr eldhúsi sem er með þremur hliðum hússins um 90 m² að stærð. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum á gólfi. Í hjónaherbergi er hvítur fataskápum og barnaherbergi er koja.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggir eru klæddir með baðþiljum. Á baðherberginu er walk-in sturta, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél. Blöndunartæki og baðinnrétting eru frá Tengi.
Svefnloft, ljósar korkflísar frá Þ.Þorgrímsson eru á öllu rýminu. Gluggar snúa vestur og norður með góðu útsýni. Brunastigi er utan á húsi. Geymslurými er við hlið svefnlofts. Ekki er full lofthæð á svefnlofti en þar er gert ráð fyrir leiksvæði og svefnrými.
Geymsluskúr er við hlið hússins, 14.4 m² að stærð (frá Kofar og hús, tegund Naust). Gólf er einangrað. Búið er að koma fyrir frárennsli og vatnslögnum en ekki búið að tengja.
Verönd: Rúmgóð verönd er með þremur hliðum hússins, um 90 m² og klædd með Lunawood. Á veröndinni er heitur pottur (Queen skel frá heitirpottar.is ásamt loki).

Annað
- Lóðin er 9661 m² eignarlóð og er gróðri vaxin.
- Húsið var flutt á staðinn árið 2022.
- Heitavatnsréttindi fylgja lóðinni og er því enginn kostnaður við upphitun á húsinu á meðan vatn er til staðar. 
- Gólfhiti er á öllu rými hússins (utan svefnlofts) og hitastýring frá Danfoss, hægt að stýra m.a. gegnum app.
- Heitapottssstýring WiFi frá heitirpottar.is og hægt að stýra m.a. gegnum app.
- Sérsniðnar ljósar rúllugardínur frá Vogue eru fyrir öllum gluggum.
- Frábært útsýni.
- Möguleiki er að fá innbú keypt með.

Húsið er skráð sem einbýlishús og þar má því hafa fasta búsetu ef áhugi er á. Húsið er staðsett austan megin í Reykjadal um 1 km frá Framhaldsskólanum á Laugum og sundlauginni.  
Á Laugum er kjörbúð og veitingastaðurinn Dalakofinn ásamt bensínafgreiðslu. 
Vegalengdir: Akureyri um 46 km, Húsavík um 40 km  og Mývatnssveit um 40 km.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone