Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög glæsilegt 249,6 m2 einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað í rólegum botnlanga við Þrastarhöfða 28, rétt við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Gott skipulag og mjög mikil lofthæð,3,4 metrar í alrýmum og 2,85 metrar í herbergjum og bílskúr. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Húsið er klætt að utan með flísum og við. Glæsileg afgirt lóð með hellulögn og veröndum. Heitur pottur og stór geymsluskúr. Stórt hellulagt bílalstæði með snjóbræðslu. Eignin er skráð 249,6 m2, þar af einbýli 205,0 m2 og bílskúr 44,6 m2. Auk þess er kaldur geymsluskúr sem er ekki skráður í fermetratölu eignarinnar.
Húsið skiptist í tvö barnaherbergi (þrjú á teikningu), hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, þvottahús, baðherbergi, bílskúr, forstofu, sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu.
Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöllinn, Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, Lágafellslaug og World Class.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með stórum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 1 er mjög rúmgott inn af forstofu með fataskáp. Er á upphaflegri teikningu tvö herbergi. Auðvelt er að breyta í tvö herbergi þar sem það eru tvær hurðar inn í herbergið.
Svefnherbergi nr. 2 (Hjónaherbergi) er rúmgott með útgengi út í bakgarð. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og baðherbergi með vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug, steinn á borði.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum.
Baðherbergi er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, baðkari, rúmgóðri sturtu með innbyggðum tækjum og stórri innréttingu, steinn á borði. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með rúmgott með innréttingu með miklu skápaplássi, þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn. Úr þvottahúsi er útgengt út í geymslu/garð.
Sjónvarpshol er rúmgott með innréttingu, steinn á borði.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og hljóðdempandi plötum með innbyggðri lýsingu til að bæta hljóðvist. Stórir gluggar og útgengi út á verönd í suðurátt.
Eldhús er með stórri innréttingu og eyju með miklu vinnu- og skápaplássi, steinn á borði. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, bökunarofn, örbylgjuofn, gashelluborð og háfur. Gert er ráð fyrir amerískum ísskáp í innréttingu.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi. Fataskápar og innrétting er í bílskúr.
Steinteppi er á gólfum nema á stofu þar er parket, á baðherbergjum og í bílskúr en þar eru flísar.
Verð. kr. 214.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.