Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Þorri Viktorsson
Vista
fjölbýlishús

Hofteigur 36

105 Reykjavík

105.900.000 kr.

870.888 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019323

Fasteignamat

87.900.000 kr.

Brunabótamat

60.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
121,6 m²
svg
4 herb.
svg
4 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 15. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Falleg hæð með útleigumöguleika. Verið velkomin!

Lýsing


Fasteignasalan Miðborg kynnir fallega og mjög vel staðsetta hæð með aukaíbúð, alls 121,6 fm.

Falleg og talsvert endurnýjuð 94,6 fm. miðhæð í þríbýlis-parhúsi á þessum eftirsótta stað, ásamt sérstandandi 27 fm. íbúðarhúsi (skráð geymsla) sem hefur verið endurbyggt að verulegu leyti.  Húsið stendur á góðri baklóð frá götunni og hefur fallega suðurlóð, sem var þökulögð 2022 vegna drenframkvæmda.  Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.  Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús.  Húsið hefur talsvert verið endurnýjað á liðnum árum, það var endursteinað að utan 2016 og þá var einnig skipt um járn og pappa á þaki.  Sameiginlegur geymsluskúr fyrir reiðhjól og garðáhöld er á lóð.  Aukaíbúðin er 27 fm. og skiptist í litla forstofu, eldhús, baðherbergi, stofu, svefnkrók og svefnloft.


Nánari lýsing.  Komið er af forstofu á sameign, á hol íbúðarinnar sem er parketlagt og með skápum.  Stofan er rúmgóð með stórum suður- glugga og útgangi á S/A svalir, með stiga niður í garðinn.  Tvö parketlögð barnaherbergi. Hjónaherbergið er parketlagt og með góðum skápum.  Eldhúsið er með linoleum góflefni, hvítri viðarinnréttingu, borðkrók, glugga og lögn fyrir uppþvottavél.  Keramik helluborð og ofn.  Baðherbergið var endurnýjað 2014, það er flísalagt, með hita í gólfi, baðkari með sturtuþili, innréttingu og glugga.  Í kjallara er sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél). Þar eru geymsluhillur íbúða í opnu rými.  Köld sérgeymsla undir útitröppum fylgir einnig.

Aukahús/íbúð er með nýju þaki frá 2022.  Parketlögð forstofa, samliggjandi við eldhús, hol og stofuBaðherbergið er standsett, með sturtuklefa, vegghengdu salerni og flísum á gólfi.  Stigi upp á svefnloft (6,5fm.) sem er yfir hluta af stofu, með gluggum uppi við loft.  Annað svefn- eða geymsluloft (3,5 fm.) yfir innréttingum og baðherbergi.  Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í eldhúsi.  Eignin hefur verið nýtt til útleigu árum saman, en var endurnýjuð og endurinnréttuð að verulegu leyti á árunum 2018-2022.  Neysluvatns- og ofnalagnir í litla húsinu voru endurnýjaðar 2022, sem og raflagnir og rafmagnstafla.

2016:  Húsið endursteinað að utan og skipt um þakjárn og pappa.
2018:  Ný eldhúsinnrétting og tæki í aukahús.
2021:  Ný aluzink klæðning á veggi á aukahúsi.
2022:  Nýtt dren með aðalhúsi.
2022:  Nýtt þak, nýjar raf-, neysluvatns- og ofnalagnir í aukahúsi, nýtt baðherbergi og gólfefni.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lfs., [email protected] eða í síma 894-7070.

 

img
Björn Þorri Viktorsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miðborg fasteignasala
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone
img

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. feb. 2014
27.550.000 kr.
35.200.000 kr.
121.6 m²
289.474 kr.
6. apr. 2011
21.550.000 kr.
26.300.000 kr.
121.6 m²
216.283 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík