Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Miðvangur 41

220 Hafnarfjörður

51.000.000 kr.

753.323 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2078009

Fasteignamat

48.250.000 kr.

Brunabótamat

35.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
67,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 12. júlí 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Miðvangur 41, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 504. Eignin verður sýnd sunnudaginn 12. júlí 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lögg. fasteignasali, kynna íbúð 504 við Miðvang 41, Hafnarfirði. 

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Eignin var mikið endurnýjuð árið 2012 en þá var skipt um eldhúsinnréttingu og eldhústæki. Lagt var nýtt parket á íbúðina og baðherbergið endurgert að hluta. Vegghengt salerni var sett upp og walk in sturta þar sem áður var baðkar, og skipt um innréttingu.  


Eignin er alls 67,7 fm, íbúðin er 65 fm og geymsla í kjallara er 2,7 fm. Næg bílastæði eru við húsið.

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og eldhústækjum sem eru sem ný. Borðkrókur er við enda eldhússins.
Stofan og borðstofan eru í alrými með útgengt á svalir með gríðarlegu útsýni. Parket á gólfi.
Svefnherbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, lítilli innréttingu og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla/ þvottahús með tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla í sameign sem er 2,7 fm.

** Í húsinu starfar húsvörður og þar er mjög virkt og öflugt húsfélag. Tvær lyftur eru í húsinu.  Hleðslustöðvar eru til staðar fyrir þá sem eiga rafbíla og myndavéladyrasímar eru nýlegir. **
** Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í húsfélaginu. Hússjóður er vel staddur og mánaðarlegt gjald í hússjóð fyrir þessa eign er kr. 40.699. **


Af svölum eignarinnar er einstakt útsýni sem auðvelt er að gleyma sér yfir. Eignin er staðsett á mjög grónum og vinsælum reit í norðurbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Matvöruverslunin Nettó er á 1. hæð hússins að framanverðu.

Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á frábærum stað. Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2011
12.450.000 kr.
13.300.000 kr.
67.7 m²
196.455 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík