Opið hús: Kleppsvegur 12, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 81,3 fm og þar af er geymsla skráð 5,8 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 61.000.000 kr.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir úr stofu.
Borðstofa/hol við eldhús með parket á gólfi og þaðan er einnig útgengt á svalirnar.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, viftu yfir helluborði, flísar milli skápa. Parket á gólfi. Nýlegur gluggi í eldhúsi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Barnaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengt salerni, "walk-in" sturtu og góða innréttingu.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þvotta hús í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Falleg eign og stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla. Stutt í Laugardalinn og allt það skemmtilega sem hann hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.