Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
110,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 14. júlí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Naustavör 42, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 10. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð við Naustavör 42, Kársnesinu í Kópavogi. Eignin er skráð 110,8 fm þar af 5,8 fm geymsla. Eignin er virkilega vel skipulögð og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, annað með útgengi á pall sem snýr til suðvesturs, rúmgott baðherbergi, þvottahús, eldhús með eyju, rúmgott alrými með borðstofu og stofu með útgengi á vestur svalir með útsýni yfir sjóinn. Eignin er með sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara. Frábær staðsetning í grónu og eftirsóttu hverfi við sjávarsíðuna með útsýni í Nauthólsvík. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða [email protected] og/eða Skúli Sigurz fasteignasali í GSM: 869-7014 eða [email protected].
Íbúðin er björt og opin með vönduðum innréttingum frá Brúnás. Alrýmið er bjart og skemmtilegt, innfelld lýsing er í lofti íbúðarinnar. Gólfhiti er í íbúðinni með stýringu í hverju herbergi. Vönduð gluggatjöld fylgja ásamt flestum ljósum og kösturum. Bílastæði í lokuðum kjallara er í sér hólfi og þar fyrir innan er rúmgóð geymsla.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp undir yfirhafnir og skó, parket á gólfi.
Svefnherbergi:
I: Rúmgott hjónaherbergi með fataholi, útgengt út á pall sem snýr til suðvesturs. Parket á gólfi.
II: Gott barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara inn af eldhúsi, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vönduð innrétting, speglaskápur með LED lýsingu, upphengt salerni og sturta með innbyggðum tækjum og glerskilrúmi.
Alrými: Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með útsýni yfir Nauthólsvík og sjóinn. Útgengt er á svalir sem snúa til vesturs. Parket á gólfi.
Eldhús: Brúnbæsuð innrétting frá Brúnás með stein frá S.Helgasyni. Spanhelluborð í eyju, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél. Innfelld LED lýsing undir skápum og yfir vinnusvæði. Parket á gólfi.
Bílakjallari / Geymsla: Stórt bílastæði í lokuðum bílakjallara í sér hólfi. Rúmgóð geymsla fyrir innan stæðið. Rafmagn er komið fyrir hleðslu rafbíla og hægt að setja upp hleðslustöð á tilboði frá húsfélagi.
Frekari upplýsingar:
Naustavör 42 er sérlega glæsileg og vel skipulögð eign staðsett á Kársnesinu í Kópavogi – í vönduðu fjölbýlishúsi sem stendur við sjávarsíðuna og þaðan liggja fallegar göngu- og hjólaleiðir. Í nágrenninu er leik- og grunnskóli, sundlaug og helsta þjónusta við Hamraborg. Svæðið snýr að sama vogi og Nauthólsvík og fyrirhuguð brú yfir Fossvog mun auka tengingu við miðborg Reykjavíkur verði af þeim áformum. Hér sameinast náttúra og borg í rólegu og þægilegu hverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða [email protected] og/eða Skúli Sigurz fasteignasali í GSM: 869-7014 eða [email protected].

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2020
98.750.000 kr.
59.780.000 kr.
10110 m²
5.913 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026