Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Þorri Viktorsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
186,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 15. júlí 2026 kl. 16:00 til 16:30

Falleg og mikið endurnýjuð 5 svefnherbergja eign. Verið velkomin!

Lýsing

Fasteignasalan Miðborg kynnir fallegt og mikið endurnýjað 186,4 fm. 5 svefnherbergja raðhús á tveimur hæðum, með innbyggðum bílskúr að Hálsaseli 5 í Reykjavík.  Á neðri hæð er forstofa, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.  Á efri hæð er hol, stofur, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.

Neðri hæð:  Rúmgóð flísalögð forstofa með fataskápum (gólfhiti).  Af henni er parketlagt forstofuherbergi með fataskáp en einnig er inngangur í bílskúrinn úr forstofu.  Holið er parketlagt og opið við forstofu (gólfhiti). Þrjú parketlögð herbergi eru á neðri hæð og fataskápar í tveimur þeirra.  Stærsta herbergið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.  Baðherbergið er flísalagt, með sturtu, innréttingu og handklæðaofni.  Stórt flísalagt þvottahús með innréttingu og aðstöðu fyrir vélar í vinnuhæð.  Útgangur á stóra hellulagða verönd með útisnúrum úr þvottahúsi.

Efri hæð:  Fallegur teppalagður stigi.  Gott parketlagt hol, samliggjandi við bjartar stofur með útgangi á stórar sólríkar suðursvalir (svalagólf klætt með bambus).  Opið við stofuna er nýtt flísalagt eldhús með vönduðum tækjum, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp.  Gólfhiti í eldhúsi.  Parketlagt hjónaherbergi með skápum og annað parketlagt herbergi með skáp.  Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með stórri sturtu, innréttingu, handklæðaofni og góðum glugga.  Bílskúrinn er með vatni, hita og rafmagni (3ja fasa) og innaf bílskúrnum er góð geymsla.  Hiti í bílaplani og rafhleðslustöð til staðar.

Á sameiginlegri baklóð er leikvöllur með mörkum og leiktækjum.  Frábær staðsetning mitt á milli Seljaskóla og Ölduselsskóla (ca. 5 min gangur).

Húsið er talsvert endurnýjað skv. uppl. eigenda:
2014 var skipt um þakjárn á þaki.
2016 var skipt um öll gólfefni nema á eldhúsi og votrýmum, allar innihurðir endurnýjaðar sem og eldvarnarhurð inn í bílskúr, teppi og handrið á stiga, allir fataskápar í herbergjum og í holi. Skipt var um innréttingu í þvottahúsi og baðherbergi á neðri hæð. Einnig var skipt um alla ofna, blöndunartæki og loftaklæðningar í baðhergi og svefnherbergjum efri hæðar. 
Mest allt raflagnaefni (tenglar og rofar) endurnýjað og tafla yfirfarin. Skipt var um allt gler á norðurhlið og einn glugga. Skipt var um alla gluggalista á norðurhlið og nokkra á suðurhlið og þakkantur endurnýjaður og málaður þeim megin. 
2018 var planið hellulagt að framan og bætt við bílastæði þannig að þau eru tvö í dag.
2020 var skipt um útidyrahurðina.
2023 var húsið málað að utan
2025 nýr skjólveggur við kósýhorn að framan og nýtt skýli fyrir sorptunnur.
2026 nýtt eldhús og settur hiti í eldhúsgólf, ný inntakstafla í bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur [email protected].

img
Björn Þorri Viktorsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miðborg fasteignasala
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone
img

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. sep. 2020
62.200.000 kr.
75.900.000 kr.
186.4 m²
407.189 kr.
2. jún. 2016
39.000.000 kr.
47.000.000 kr.
186.4 m²
252.146 kr.
16. apr. 2007
31.390.000 kr.
36.300.000 kr.
186.4 m²
194.742 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miðborg fasteignasala

Miðborg fasteignasala

Skipholt 50b, 105 Reykjavík
phone

Björn Þorri Viktorsson

Skipholt 50b, 105 Reykjavík