Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1986
56 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. júlí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Frostafold 24, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg 56 fm íbúð á 3. hæð og efstu hæð í lágreistu vel höldnu fjölbýli við Frostafold 24 í Grafarvogi. Húsið er í rólegri og fjölskylduvænni götu. Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar en gott bílaplan er fyrir framan hús og við tekur snyrtilegur framgarður. Opið stórt gróið svæði er aftan við hús og stutt er í leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði og helstu þjónustu og verslanir. Allt í göngufæri.Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Á hægri hönd er nýlega endurnýjað baðherbergi. Það er flísalagt. Rúmgóð „walk in“-sturta. Vegghengt salerni. Hvít innrétting með handlaug ásamt speglaskáp. Inn á baðherbergi er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol sem tengir saman aðrar vistverur íbúðar, þ.e.a.s. forstofu, svefnherbergi og stofu. Linóleumdúkur á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskápum meðfram heilum vegg. Linóleumdúkur á gólfi.
Eldhús sem hefur verið nýlega endurnýjað. Falleg hvít innrétting. Ofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Flísar á milli efri og neðri skápa. Linóleumdúkur á gólfi.
Rúmgóð stofa með linóleumdúk á gólfi. Úr stofu er útgengt á skjólgóðar suðvestursvalir.
Frábært útsýni er úr íbúðinni og af svölunum.
Íbúðinni fylgir 4,7 fm sérgeymsla sem er í sameign ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.Bílastæði eru í sameign úti á lóð. Garður er gróinn umhverfis hús.
Ofnar eru nýjir í íbúðinni
Nýlega var búið að endurnýja hluta glugga í íbúð. Húsið hefur verið múrviðgert og málað.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í s:867-0968 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. ágú. 2014
13.050.000 kr.
18.600.000 kr.
51.3 m²
362.573 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026