Opið hús: Laufásvegur 39, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. júlí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 130,6 fm.
Nánari lýsing:
1. Hæð
Stórt svefnherbergi veggir og loft klætt með gipsplötum, kalkmálað og með stórum fataskáp. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi
Baðherbergi veggir og loft klætt votrýmis-gipsplötum. Innangengt úr svefnherberginu, góðinnrétting með marmara borðplötu og -vaski, upphengdu salerni, walk-in sturtu, flísalagt gólf og að hluta til á veggjum sem eru hvít kalkaðir þar sem ekki eru flísar. Gluggar á þrjár hliðar.
Þvottahús og geymsla, rúmgott rými með sér inngangi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur. Málað steingólf.
2. Hæð
Aðalinngangur í húsið, gengið upp tröppur úr garði. Fataskápur við inngang.
Eldhús er samliggjandi stofurýmum, góð eldhúsinnrétting, marmara borðplata, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, gaseldavél með rafmagnsofni. Parket á gólfi.
Borðstofa/stofa samtengt eldhúsi, bjartar með birtu frá gluggum sem snúa í þrjár áttir. Parket á gólfi
Svefnherbergi er nú notað sem sjónvarpsstofa og bókaherbergi. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi.
Af þessari hæð úr alrýminu er stigi niður á 1. hæð og upp á 3. hæð.
3. Hæð undir súð. Gólfflötur töluvert stærri en gefið er upp í fasteiganyfirliti.
Stofa sem er notuð sem vinnuherbergi í dag. Tveir góðir gluggar og góðir skapar undir súð. Parket á gólfi
Svefnherbergi, tveir þakgluggar. Parket á gólfi.
Snyrting með vaski og salerni, góðum glugga. Parket á gólfi.
Garður:
Afgirtur, skjólgóður og sólríkur með nýlegri hellulögn, fjölskrúðugum gróðri, grasflöt og snúrustaurum. Góður pallur við inngang.
Helstu framkvæmdir síðustu ár:
Árið 2014: Eldhús algjörlega endurnýjað. Loft og veggir í svefnherbergi á 1. hæð klæddir gipsplötum og málað með hvítri kalkmálningu og smíðaður veggfastur fataskápur. Baðherbergi á 1. hæð algjörlega endurnýjað, það var klætt vatnsþolnum gipsplötum, málað með hvítri kalkmálningu, allar innréttingar sérsmíðaðar, gólf flísalagt og að hluta veggir, sturtuklefi með nýjum tækjum og sturtugleri.
Árið 2016: Hellur lagðar í norð-austur horni garðsins. Trjástubbar og rætur fjarlægt. Snúrustaurar færðir úr miðjum garði afturfyrir hús.
Árið 2019: Smíðaður nýr pallur með handriði við útidyr. Skipt um allar gluggakrækjur og stormjárn.
Árið 2020: Ný og endurnýjuð hellulögn í vesturhluta garðs, ásamt skjólvegg fyrir sorp. Tvö útiljós sett í hellulögn og ný úti veggljós.
Árið 2021: Allt húsið málað að utan, veggir, þak og gluggar. Þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð. Áfellur settar á húsmæna á þaki.
Árið 2025: Snjógildrur settar á þak.
Fallegt og sjarmerandi einbýli á þessum vinsæla stað í miðborginni. Stutt í alla þjónustu og Hljómskálagarðurinn og allt það skemmtilega sem miðbærinn hefur upp á að bjóða í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla.
Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected] og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.