Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Halla Vilbergsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Arnarás 12

210 Garðabær

112.000.000 kr.

907.618 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2250692

Fasteignamat

99.850.000 kr.

Brunabótamat

76.220.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
123,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Arnarás 12C, 210 Garðabær, birt stærð 123.4 fm.
Einstaklega falleg og björt 3–4 herbergja efri sérhæð með sér inngangi í viðhaldsléttu tengihúsi í rólegri botnlangagötu í Ásahverfi Garðabæjar. Íbúðin er glæsileg og vel skipulögð, með gluggum á alla vegu og stórkostlegu útsýni til norðurs og vesturs yfir sjóinn, Snæfellsjökul og Esjuna. Rúmgóðar, yfirbyggðar suð-vestur svalir sem hægt er að opna að fullu. Íbúðinni fylgir sér stæði í upphitaðri bílageymslu.

** Einstaklega fallegt útsýni til norðurs og vesturs
** Yfirbyggðar svalir (tæpir 18 fm)
** Stæði í bílageymslu
** Möguleiki á þremur svefnherbergjum
** Sér inngangur


Nánari upplýsingar veitir: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected].

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
er rúmgóð með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft.
Þvottahús/geymsla er innaf forstofu með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél, þurrkara og vask.
Barnaherbergi er innaf forstofu með harðparketi á gólfi, tvöföldum fataskáp upp í loft og fallegu útsýni til norð-vesturs yfir sjóinn.
Hjónaherbergi er rúmgott, með harðparketi á gólfi, góðum fataskáp upp í loft og sama glæsilega útsýni til norð-vesturs yfir sjóinn.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og að mestu leyti á veggjum. Falleg innrétting með quartz-steini síðan og innbyggðum vaski, stór spegill með ljósi yfir vaski, baðkar og walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Eldhús er mjög rúmgott með miklu skápaplássi og góðu borðplássi. Innrétting er á tvo veggi, með efri og neðri skápum, quartz-steini á borðum og milli skápa á veggjum.
Stofa og borðstofa mynda opið og bjart samliggandi rými með harðparketi á gólfi. Út frá borðstofu er gengið á yfirbyggðar suð-vestur svalir, og setustofan státar af stórum gluggum og stórfenglegu útsýni til norðurs og vesturs — yfir sjóinn, Snæfellsjökul og Esjuna.
Svalir eru yfirbyggðar, tæpir 18 fm, snúa til suð-vesturs og er hægt að opna þær alveg.
Bílakjallari undir húsinu er lokuð, upphituð bílageymsla þar sem íbúðinni fylgir eitt sérmerkt stæði. 
Umhverfi: Vinsæl staðsetning í botnlangagötu í Ásahverfi Garðabæjar, stutt í alla helstu þjónustu ásamt fallegum göngu- og hjólaleiðum í ósnortinni náttúru.

Húsið er steypt og klætt að utan með állitaðri báraðri klæðningu og að hluta setrus. Gluggar og hurðir að utan eru úr áli á timburramma.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

img
Sigurjón Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
img

Sigurjón Rúnarsson

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. feb. 2016
42.900.000 kr.
46.500.000 kr.
123.4 m²
376.823 kr.
8. maí. 2007
29.710.000 kr.
35.100.000 kr.
123.4 m²
284.441 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone

Sigurjón Rúnarsson