Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2008
180,1 m²
7 herb.
3 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Heimkoma er ný tegund fasteignaþjónustu á Íslandi þar sem nokkrar fjölskyldur deila einni eða fleiri gæða frístundaeignum í skipulögðu samfélagi.
Í fyrsta verkefni félagsins er um þriggja húsa samfélag að ræða þar sem hver fjölskylda á 1/12 hluta og á því 12 vikur yfir árið í sínum húsum (4 vikur í hverju húsi).
Eignirnar, sem eru heilsárseignir, eru í þremur mismunandi landshlutum, sem tryggir fjölbreytta notkun allt árið.
Kostir sameignar eru meðal annars. Minni fjárfesting. Lægri rekstrarkostnaður. Betri nýting á fasteignum og innviðum. Fjölbreytileiki í ljósi þriggja staðsetninga. Engar áhyggjur né ábyrgð á viðhaldi eða rekstri, Heimkoma sér um allt.
Um fjárfestingu í fasteignum er að ræða, kaupandi er þinglýstur eigandi hluta af þremur fasteignum.
HÉR MÁ SJÁ ALLAR UPPLÝSINGAR UM HEIMKOMU
Hraunbrekkur 22, Húsafell er hús nr 1,Hér má ganga um húsið:
Stórglæsilegt 180 fm heilsárshús ásamt 20 fm gestahúsi á frábærum stað í Húsafelli. Kjörin eign fyrir stórfjölskylduna, fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi og fleira prýða þessa einstöku eign sem er á tveimur hæðum. Sjón er sögu ríkari.
Neðri hæð:
Komið inn í rúmgott flísalagt anddyri. Inn af anddyri er þvottahús með þvottavél og þurrkara. Innrétting með skolvaski.
Stofa og borðstofa eru opin við eldhús. Á neðri hæð er einnig rúmgott svefnherbergi og stórt baðherbergi með sturtu og sauna. Hurð út á verönd með heitum potti og útisturtu.
Efri hæð:
Þrjú svefnherbergi öll með útgengi á svalir.
Stórt svefnherbergi með baðherbergi. Baðherbergið er með gólfhita og baðkari.
Annað stórt svefnherbergi með fataherbergi/geymslu inn af herbergi.
Rúmgott svefnherbergi með skrifstofuaðstöðu.
Gestahús:
Rúmt gestahús með baðherbergi með sturtu.
Í öðrum enda gestahúsins er geymsla og þar eru inntök og varmaskiptir fyrir hitakerfi húsins.
Húsið er með ofnakerfi í öllum herbergjum en einnig gólfhita á jarðhæð og í baðherbergi á efri hæð. Skipt var um stýrikerfi í húsinu á síðasta ári og settur varmaskiptir fyrir heita vatnið þannig að hægt er að stýra því með snjallforriti. Þannig er t.d. hægt að kveikja á heitapottinum fyrir komu í húsið.
Stór pallur er í kringum húsið og geymsluskúr fyrir grill og útihúsgögn. Heimkomu eignir eru alltaf afhentar fullbúnar húsgögnum og öllum hús- og tækjabúnaði.
Hér er um að nýja leið til að eignast hlut í einstökum húsum á eftirsóttum stöðum. Húsið er númer eitt af þremur og á ásett verð við um 1/12 hlut í þeim öllum. Heildarverð húsana með innbúi og öðru er tæplega 400 milljónir.
Hús númer tvö er á Akureyri, í göngufæri frá miðbænum og verður það afhent í byrjun sumars. HÉR MÁ SJÁ HÚS NR 2.
Hús númer þrjú verður á suðurlandi / Grímsnesi og verður það afhent næst komandi haust.
Húsin eru öll í sömu gæðum og að svipaðri stærð. Öll eru húsin fullbúin heimilistækjum, húsgögnum og öðrum nauðsynlegum búnaði, eins og t.d. heitum potti og gufubaði.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. des. 2020
59.400.000 kr.
5.700.000 kr.
180.1 m²
31.649 kr.
28. júl. 2017
37.230.000 kr.
53.500.000 kr.
180.1 m²
297.057 kr.
30. des. 2011
28.670.000 kr.
148.000.000 kr.
11047.7 m²
13.396 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026