Lýsing
Mjög falleg 5 herbergja íbúð á 1. hæð sem hefur verið mikið endurnýjuð. Íbúðin er skráð 98,7 fm en um 9 fm geymslu vantar í skráningu og er því heildarstærð um 108 fm. Íbúðin skiptist í 4 svefnherbergi, stofu, borðstofurými, eldhús, þvottahús og baðherbergi. Róleg og góð staðsetning við Fossvogsdalinn með Snælandsskóla, leikskólann Furugrund og íþróttasvæðið Fagrilund og íþróttasvæði Víkings í næsta nágrenni.
Frábær fjölskyldueign!
Nánari lýsing: Komið er inn á forstofugang með fataskápum. Stofa og borðstofa í opnu rými með góðum glugga til vesturs. Útgengt er út á rúmgóðar suðvestur svalir frá stofu. Fallegt eldhús með ljósri viðarinnréttingu, flísalagt er á milli innréttinga. Við enda eldhússins er setuaðstaða við glugga með góðu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr með vinnuborði og hillum. Fallegt nýuppgert baðherbergi með flísaum á gólfi og hluta veggja, baðkari, salerni og innréttingu með vask. Hjónaherbergi með þreföldum fataskáp. Þrjú barnaherbergi öll með fataskápum. Gólfefni íbúðarinnar eru parket á öllu nema vínylflísar á þvottahúsi/búri og flísar á baðherbergi. Skipulagi íbúðar hefur verið breytt þannig að herbergi var bætt við á kostnað stofunnar. Í kjallara er sér um það bil 9 fm geymsla sem er ekki inni í skráðum fermetrum eignarinnar. Í kjallaranum er einnig þvottahús og hjólageymslur. Góður garður er á baklóð hússins. Næg bílastæði eru í götunni og rafhleðslustöð er við húsið.
Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Endurbætur og viðhald síðastliðin ár:
Íbúðin sjálf
Nýtt parket 2023
Skipt um öryggi í rafmagnstöflu 2023
Ofnar endurnýjaðir 2024
Nýjir gluggir á austurhlið 2024
Vínylparket á þvottahús 2025
Baðherbergi endurnýjað 2025
Húsið
Drenlagnir endurnýjaðar 2019
Gangstétt fyrir framan hús endurnýjuð með hellulögn og snjóbræðslu 2019
Hleðslustöð sett upp 2022
Nýjir gluggar í sameign 2024
Umhverfi gerist vart fallegra þar sem Fossvogsdalur með alla sína kosti og gönguleiðir liggur að húsinu. Þar er mikil barna- og fjölskyldustemning með fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða [email protected]