Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
hæð

Grænahlíð 16 íb301

105 Reykjavík

97.900.000 kr.

861.038 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2031454

Fasteignamat

90.550.000 kr.

Brunabótamat

59.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1957
svg
113,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 16. júlí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Grænahlíð 16 íb301, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 16. júlí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Háborg fasteignasala og Jórunn, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti í einkasölu Grænahlíð 16 105 Reykjavík, stórglæsilega 113,7 fm fimm herbergja íbúðahæð á efstu hæð. Sameiginlegur inngangur með 2. hæð. Eigninni fylgir merkt bílastæði. Möguleiki á að setja 4. svefnherbergið á kostnað stofunar. Afhending samkomulag.
Hér er um að ræða sérlega bjarta og smekklega íbúð á 3. hæð (efstu hæð). Hlíðahverfið er rótgróið og eftirsótt hverfi og Grænahlíð 16 er bakhús staðsett við opið grænt svæði með leikskóla og leikvelli. Klambratún er í göngufæri, sömuleiðis íþróttasvæði Vals. Einnig eru grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri.

 Lykilupplýsingar
· Stærð: 113,7 fm
· Herbergi 5 (3 svefnherbergi + 2 stofur)
· Hæð: 3. hæð(efsta hæð)
· Inngangur sameiginlegur: með 2. hæð
· Byggingarár: 1957

Lýsing eignarinnar
Komið er inn í sameiginlegan stigagang. Þegar upp er komið er stigapallur með fataslá og góðum skóskáp. Þegar inn er komið er rúmgott hol, sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Úr holi er gengið inn í tvær stofur sem eru mjög rúmgóðar og bjartar með útgengt út á suður svalir. Eldhús og stofur

Eldhúsið var endurnýjað árið 2013 með sérhönnuðum innréttingum. Komið var fyrir ljósri innréttingu með eyju. Stein borðplötur. Stofur eru bjartar og rúmgóðar, með útgengt á suður svalir með sól allann daginn. Svefnherbergi og baðherbergi: Þrjú svefnherbergi og baðherbergi · Hjónaherbergi: með góðum fataskápum · Barnaherbergi eru tvö, bæði björt og annað með skápum. 1: bjart og rúmgott með Baðherbergið var endurnýjað árið 2013 á smekklegan máta með sérhönnuðum innréttingum, þ.á.m. skápum fyrir þvottavél og þurrkara.

Framkvæmdir og endurbætur:
Innanhúss
· 2026 Skipt um glugga á suðurhlið (á kostnað seljanda)
· 2013 Baðherbergi og eldhús endurnýjað með steini á borðum og raflagnir yfirfarnar
· 2013 Þvottavél og þurrkara komið fyrir í innréttingu á baði
· 2025 Íbúðin máluð og hurðir sprautulakkaðar
· 2025 Fataskápur í forstofu sprautulakkaður

· Hús og sameign:
· 2013: Helmingur þaks sunnanvert frá mæni, var endurnýjaður
· 2013 Settar nýjar þakrennur
· 2020 Dren og skolplagnir endurnýjaðar

Geymslur og sameign:
· Geymsla í kjallara, birtir fm 1,2 fm (fleiri rúmmetrar)
· Sameiginlegt þvottahús í kjallara, sem þau nota ekki (aðstaða á baði innan íbúðar)
· Lóð í óskiptri hlutfallslegri sameign

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni með tengli fyrir rafhleðslu. Húsið Grænahlíð 16 er steinsteypt hús, sem skiptist í kjallara og þrjár hæðir. Á húsinu er tvíhalla þak sem hallar til norðurs og suðurs, suðurhlið þaksins er með miklum halla sem myndar útvegg þriðju hæðar að sunnanverðu. Í kjallara er ein íbúð og 4 geymslur sem tilheyra hverri séreign. Lóðin sem er í óskiptri sameign er með tyrfðum flötum, með miklu og góðu rými fyrir börn að leik.

Húsfélag og rekstrarkostnaður:
Í húsinu starfar virkt húsfélag með traustri fjárhagsstöðu, Grænahlíð 16, húsfélag. Hússjóður íbúðarinnar er í skilum samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dags. 12.07.26. Mánaðarleg gjöld eignarinnar eru samtals á mánuði 18.075 kr. .

Hverfið:
Hlíðarnar er gróið hverfi og státar af fjölbreyttum skólastigum. Klambratún er eitt af kennileitum í Hlíðunum. Stutt í menningu, þjónustu og skemmtun. Úr Hlíðunum er stutt í stofnbrautir í allar áttir. Fyrir aftan húsið eru leikskóli, leikvöllurog fallegt útivistarsvæði. Grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri.

Samantekt:
Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúðarhæð þar sem hugað hefur verið að endurbótum. Fimm herbergja íbúðarhæð á efstu hæð með gróðri sem teygir sig í átt að stofugluggum. Eigninni fylgir sérmerkt stæði með tengli fyrir rafhleðslu. Grænt svæði sunnan megin við húsið og eftirsótt staðsetning í Hlíðunum gera þessa eign að sérlega spennandi kosti fyrir barnafólk.

Frekari upplýsingar: Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn, löggiltur fasteignasali, í síma 845-8958 eða á [email protected].

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. feb. 2012
25.100.000 kr.
27.000.000 kr.
109.3 m²
247.027 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík