Lýsing
Eldhús endurnýjað um 2020
Nýleg rafmagnstafla (ca. 2020)
Þak yfirfarið og málað árið 2019
Möguleiki á fjórða svefnherberginu
Rúmgóðar svalir
Sérgeymsla
Stór sameiginlegur garður með leiktækjum
Slitsterkt AC4 Wineo parket á gólfum
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er með fallegri endurnýjaðri innréttingu frá um 2020, góðu skápa- og vinnuplássi og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö barnaherbergi eru bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Aukaherbergi er inn af stofu með glugga og nýtist vel sem skrifstofa, sjónvarpsherbergi eða fjórða svefnherbergi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og flísum á gólfi.
Sérgeymsla í sameign er 4,80 fermetrar. Auk þess er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Húsið og nærumhverfið
Sameiginlegur garður er stór og gróinn með leiktækjum fyrir börn og góðri aðstöðu til útiveru. Staðsetning eignarinnar er einstaklega fjölskylduvæn þar sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, sundlaug, heilsugæslu, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Þá eru góðar almenningssamgöngur og greiður aðgangur að helstu stofnbrautum.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður