Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Nýlendugata 22

101 Reykjavík

79.900.000 kr.

1.029.639 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000371

Fasteignamat

73.050.000 kr.

Brunabótamat

36.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1926
svg
77,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 15. júlí 2026 kl. 16:45 til 17:45

Opið hús: Nýlendugata 22, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 15. júlí 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:45.

Lýsing

Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna einstaklega fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða 77,6fm, 3ja herbergja íbúð á 3 hæð í fallegu, reisulegu og karakterríku steinhúsi í hjarta Gamla Vesturbæjarins í Reykjavík að Nýlendugötu 22. 4 íbúðir eru í húsinu, 1 á hverjum palli. Einstaklega falleg og björt rými með fallegri gluggasetningu og aukinni lofthæð Húsið er steinsteypt, teiknað af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingameistara og byggt árið 1926. Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2018 þar sem eldhús, baðherbergi og eldhús var ma. endurnýjað. Árið 2019 voru byggðar svalir fyrir íbúðina, útfrá eldhúsi. Neysluvatnslagnir, ofnar, skolplagnir og dren var yfirfarið og endurnýjað í kringum aldamótin. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða [email protected]

Eignin skiptist í anddyri, gang, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu. Allir séreignafermetrar eru innan íbúðar.


Staðsetningin að Nýlendugötu 22 í 101 Reykjavík er einstök að því leyti að hún brúar bilið á milli sögulegrar og rólegrar bæjarstemningar og líflegs miðborgarlífs.Gatan dregur nafn sitt af tómthúsbýlinu Nýlendu, sem stóð neðst við götuna og var reist undir lok 18. aldar. Nýlendugatan var ein af fyrstu skipulögðu götunum í vesturbænum þar sem verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn byggðu sér hús nálægt sjónum. Aðeins örfá skref skilja húsið frá Granda og Gömlu höfninni, sem hefur á síðustu árum breyst í einn vinsælasta og líflegasta krika borgarinnar. Á sama tíma tekur það ekki nema um 5–10 mínútur að ganga inn í Kvosina, að ráðhúsinu eða á Austurvöll. Þá eru skólar á öllum stigum í nágranninu.

Nánari lýsing:
Anddyri / Gangur: Frá stigapalli er komið inn á gang og þaðan er gengið í allar vistaverur. Speglaskápur við enda gangs við hjónaherbergi.
Eldhús: Falleg innrétting með neðri skápum og upphengdum hillum fyrir ofan innréttingu, flísar á milli. Smeg eldavél með gashelluborði, háfur fyrir ofan, innbyggð uppþvottavél og aðstaða fyrir ísskáp við enda innréttingar. Glæsilegt rými í góðri tengingu við stofu. Aukin lofthæð, fallegir gluggar og útgengt út á svalir.
Stofa: Hálf opið við eldhús. Rúmgóð og björt. Aukin lofthæð og fallegir gluggar til tveggja átta.
Baðherbergi: Uppgert á vandaðan og fallegan máta árið 2018. Sturtuklefi með gleri, innrétting með neðri skúffum, vask ofan á og speglaskáp fyrir ofan vask. Salerni og upphengdur handklæðaofn. Gólfið er prýtt tímalausum, hvítum áttstrendum flísum með litlum svörtum ferningum á milli.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fallegum glugga.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með þreföldum fataskáp.
Geymsla: Innan íbúðar á gangi á milli svefnherbergjanna.

Lóð: Eignarlóð, hellulögð að hluta og með tyrfðri flöt að hluta.

Sérlega falleg og vel skipulögð íbúð í afar fallegu steinsteyptu húsi í Gamla Vesturbænum. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu verslun, skólum á öllum stigum ásamt fallegum göngu- og hjólaleiðum meðfram sjónum.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur [email protected].


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. júl. 2020
62.900.000 kr.
48.500.000 kr.
10301 m²
4.708 kr.
27. mar. 2017
33.450.000 kr.
41.700.000 kr.
77.6 m²
537.371 kr.
17. feb. 2011
17.850.000 kr.
18.500.000 kr.
77.6 m²
238.402 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone