Lýsing
Miklaborg kynnir: vel skipulagða þriggja herbergja 83,8 fermetra íbúð á annarri (efstu hæð) ásamt sér stæði í opnu bílskýli við Tröllaborgir 17.
Sérinngangur, forstofa, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, stofa, borðstofa, svalir, eldhús, baðherbergi, sér þvottahús og sérgeymslu í sameign.
Stutt er í alla helst þjónustu m.a leikskóla, grunnskóla og í verslunarkjarnann Spöngina.Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni eignar.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða [email protected]
Nánari lýsing eignar.
Forstofa með fataskáp og flísalögðu gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og hvítri innréttingu. Eldhús, borðstofa og stofa í einu samliggjandi og opnu rými.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stórar suður svalir.
Hjónaherbergi er sérlega rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er glæsilegt útsýni til sjávar og yfir Esjuna.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er staðsett innan íbúðar. Í þvottahúsi eru flísar á gólfi og hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla fylgir eigninni en hún er staðsett á jarðhæð. Af gangi íbúðarinnar er lúga upp í þakrými sem nýtt hefur verið sem geymsluloft.
Eigninni fylgir eitt stæði opnu bílskýli.
Í sameign er hjóla og vagnageymsla.
Stutt er í alla helst þjónustu m.a leikskóla, grunnskóla og í verslunarkjarnann Spöngina.Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni eignar.