Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Fossagil 6

603 Akureyri

148.900.000 kr.

725.280 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2287024

Fasteignamat

118.550.000 kr.

Brunabótamat

107.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
205,3 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
Opið hús: 21. júlí 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600 

Fossagil 6 - Vandað 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr í Giljahverfi - Stærð 205,3 m² auk um 35 m² óskráðrar geymslu.

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð  92,8 m² :
Forstofa, gangur, tvö herbergi, baðherbergi, geymsla og bílskúr.
Efri hæð 112,5 m² : Eldhús, borðstofa og stofa í alrými, gangur, hjónaherbergi með fataherbergi, tvö herbergi og baðherbergi.

Forstofa er rúmgóð og björt og úr henni liggur teppalagður stigi upp á efri hæðina. Stór hvít málaður skápur og skúffur og innfelld lýsing í lofti. 
Eldhús, hvít máluð innrétting og eldunareyja með svartri granít bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél. Milli eldhúss og borðstofu er hurð út til suðurs á rúmgóða steypta verönd með heitum potti. 
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými þar sem gráar flísar eru á gólfum innfelld lýsing í loftum og stórir gluggar til austurs. 
Baðherbergin eru tvö. Á neðri hæðinni eru gráar flísar á gólfum og hvítar á veggjum, hvít innrétting, sturta og upphengt wc. Baðherbergi á efri hæðinni er einkar glæsilegt og flísalagt í hólf og gólf. Hvít filmuð innrétting með svartri granít bekkplötu, upphengt wc, hlaðin og flísalögð sturta með innfelldum tækjum og lýsingu og hurð út á verönd.
Hjónaherbergið er á efri hæðinni og inn af því er fataherbergi með hengi. Innfelld lýsing er í loftum og flísar á gólfum. 
Herbergin eru fjögur, tvö á hvorri hæð og öll með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu. Stærð herbergja er á bilinu 8,5 -10 m².  
Bílskúrinn er skráður skv. teikningum 29,7 m² að stærð og þar eru dökkar flísar á gólfi, rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Innst í bílskúrnum er hvít þvottahúsinnrétting.
Geymsla er inn af bílskúrnum með eins flísum á gólfi og hillum. 
Önnur geymsla er undir hluta af veröndinni 35-40 m² að stærð og gengið er inn í hana um tvöfalda hurð svo möguleiki er t.d. að setja þarna inn stærri hluti eins og snjósleða og annað. Þessir fermetrar er ótaldir í heildar fermetrafjölda eignar.

Fyrir framan húsið er fallega hannað bílaplan, steypt og hellur með blómabeðum á milli. Hitalagnir eru í hluta og að hluta til ótengdar. 
Lóðin er falleg og með fjölbreyttum gróðri. Gönguleiðir eru beggja vegna við húsið upp á baklóðina. 
Um 70-80 m² steypt verönd með steyptum skjólveggjum er með suður og vesturhlið hússins. Heitur pottur/skel er á veröndinni. Lýsing er á veröndinni og tenglar í þakskyggni.

Annað
* Gráar 30*60 flísar eru á helstu rýmum og allar innihurðar eru hvíttuð eik og með felliþröskuldum.
* Vönduð lýsing er utan á húsi og verönd.
* Öryggiskerfi (hreyfi, vatns og reykskynjarar) fylgja með. 
* Vönduð eign við vinsæla botnlangagötu í Giljahverfi.
* Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone