Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Lerkigrund 1

300 Akranes

45.900.000 kr.

673.021 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2102664

Fasteignamat

40.300.000 kr.

Brunabótamat

45.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
68,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali - Beinn sími 450-0000 kynnir: Björt og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð með auka herbergi í kjallara til útleigu, rúmgóðum suðursvölum og einstöku útsýni á góðum stað á Akranesi. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum, þar á meðal eldhús, baðherbergi og gólfefni árið 2021 skv. eldri fasteigna auglýsingum. Húsið hefur einnig fengið gott viðhald að utan. Eign sem hentar jafnt fyrstu kaupendum sem fjárfestum.

Húsið og nærumhverfið
Árið 2018 voru suðurhlið hússins og báðir gaflar klæddir ásamt því sem skipt var um glugga í stofu og svefnherbergi, svalahurð endurnýjuð og svalir lagfærðar. Húsið er klætt með álklæðningu og neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar upp í íbúð skv. upplýsingum úr eldri fasteignaauglýsingum. Eldvarnarhurð er á íbúðinni.

Helstu kostir:
Endurnýjað eldhús (2021)
Endurnýjað baðherbergi (2021)
Nýlegt parket
Rúmgóðar suðursvalir
8,5 fm sérgeymsla með glugga 
Húsið klætt að utan (2018) 
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar upp í íbúð


Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2021 og er með fallegri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi, Bosch bökunarofni, spanhelluborði og viftu. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Nýlegir gluggar til suðurs veita góða birtu.
Svefnherbergi er rúmgott með stórum fataskápum, parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar suðursvalir um nýlega svalahurð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2021 og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, sturta með innbyggðri lýsingu, vönduð blöndunartæki og tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Sérgeymsla í kjallara er rúmgóð, uþb. 8,5 fermetrar að stærð, með glugga og máluðu gólfi. Leigutekjur geta verið uþb. 70.000 kr. á mánuði. Aðgangur að sameiginlegu baðherbergi. 

Í sameign er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla.

Eignin er á góðum stað á Akranesi þar sem stutt er í verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Fallegar göngu- og útivistarleiðir eru í nágrenninu sem gera staðsetninguna einstaklega eftirsótta.
Eign með góðu skipulagi, vönduðum endurbótum og hentug bæði til eigin nota og sem fjárfesting með leigutekjum.


Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – 
löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. maí. 2023
30.600.000 kr.
34.500.000 kr.
68.2 m²
505.865 kr.
4. des. 2019
18.800.000 kr.
20.500.000 kr.
68.2 m²
300.587 kr.
15. apr. 2016
11.300.000 kr.
11.200.000 kr.
68.2 m²
164.223 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður