Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
90,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð við Trönudal 1 í Innri-Njarðvík. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign sem skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og rúmgott alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. Frá stofu er útgengt á stórar svalir til vesturs. Eignin er staðsett á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslun og falleg útivistarsvæði. Eignin er laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í síma 856-5858, tölvupóstur [email protected]  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 90,4 m² og eru þeir allir innan íbúðar.

Nánari lýsing
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Alrými með samliggjandi eldhús og stofu, og parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á stórar 22,9 m2 flísalagðar svalir til vesturs. 
Eldhús er opið við stofu. Hvít innrétting frá HTH, flísalagt á milli efri og neðri skápa og ráð gert fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi og glugga til vesturs
Barnaherbergi I er bjart og rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi II er skráð sem geymsla skv. teikningum en er með glugga og nýtt sem herbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með handlaug og skápaplássi. Upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta með glerþil. 
Þvottahús er innan íbúðar með flíar á gólfi, Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vinnuborð og skápar á vegg.

Eignin er vel staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Í göngufæri eru Stapaskóli, leikskólar, íþróttasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði. Þá er stutt í alla helstu þjónustu og góðar samgöngur bæði innan Reykjanesbæjar og til höfuðborgarsvæðisins. Eignin hentar afar vel fjölskyldum sem vilja búa í rólegu og barnvænu umhverfi. 

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / [email protected]

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. ágú. 2023
42.450.000 kr.
50.500.000 kr.
90.4 m²
558.628 kr.
17. maí. 2019
36.800.000 kr.
34.500.000 kr.
90.4 m²
381.637 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ