Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Ásholt 8 Hauganesi

621 Dalvík

58.000.000 kr.

440.061 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2156748

Fasteignamat

42.350.000 kr.

Brunabótamat

85.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
131,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Ásholt 8 - Bjart og fallegt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð á Hauganesi - Stærð 131,8 m²
Austan við hús er mjög rúmgóð timburverönd með grillskýli og góðum geymsluskúr. Auk þess er verönd á suðvesturhlið hússins. Saman eru þær um 170 m² að stærð.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, búr/geymslu, baðherbergi, stofu og borðstofu í opnu rými, þvottahús, geymslu og snyrtingu auk fjögurra svefnherbergja.

Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og opnu fatahengi. Útidyrahurð var endurnýjuð 2018.
Í eldhúsi er parket á gólfi og stór U-laga sprautulökkuð innrétting með dökkri bekkplötu. Mikið skápapláss og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp sem geta fylgt með við sölu eignar.
Búr/geymsla er með parketi á gólfi, og vegghillum.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og hluta gólfs, þar er ljós háglans innrétting, wc og walk-in sturta með epoxy efni á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými. Þaðan er hægt að ganga út á timburverönd með skjólveggjum. Parket á gólfi.
Þvottahús er með ljósri innréttingu, skolvask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er einnig lúga upp á geymsluloft.
Inn af þvottahúsi er geymsla með vegghillum og snyrting með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi og góðum fataskápum.


Annað
- Eignin var mikið endurnýjuð um 2016, þar á meðal eldhús og baðherbergi.
- Undir verönd eru lagnir fyrir heitan pott.
- Möguleiki að reisa bílskúr á norðurhlið, skv. upphaflegum teikningum.
- Vel staðsett hús með frábæru útsýni.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. okt. 2007
8.698.000 kr.
13.500.000 kr.
131.8 m²
102.428 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone