Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
393,6 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] og Betri Stofan kynna: Lindarberg 8, 221 Hafnarfjörður. Glæsilegt 8 herbergja (7 svefnh.) einbýlishús (tengihús) með innb.bílskúr (uþb. 50 m2) samtals 393,6 fm.  Frábær staðsetning og útsýni yfir bæinn og fjörðinn, í hinu vinsæla Setbergslandi Hfj. 

Gengið er inn í húsið á 2. hæð: Forstofur eru tvær, sitt hvorum megin á húsinu. Önnur forstofan er notuð sem fjölskyldu-inngangur og hin sem gesta-inngangur. 
Fjölskyldu-megin er gott fataherbergi inn af forstofunni og innangengt er í bílskúrinn sem er rúmgóður og vel skipulagður.
Miðrýmið er með parket á gólfi, rúmgott eldhús og stofu þar sem er skemmtilegur arinn. Einnig er útgengi út á flísalagðar svalir með tröppum niður á stóran og rúmgóðan sólpall.
Á miðhæðinni eru tvö herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Gestasnyrting er með flísum á gólfum.
 
Gengið er upp stiga á 3.hæð: Stiginn er með gegnheilu parketi. Tvö stór herbergi, annað með parketi á gólfi og hitt með floti og er undir súð.
 
Gengið er niður á 1.hæð: Samskonar stigi og á 3. hæð. Komið er niður í skemmtilegt opið rými sem skiptist í tómstunda-stofu og sjónvarpsaðstöðu með útgengi út á sólpall. Á 1. hæð eru 3 svefnherbergi, tvö mjög rúmgóð og eitt þeirra með stóru fataherbergi og útgengt er þaðan út á sólpallinn. Stórt glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi. Baðkar og sturta sem grafið hefur verið inn í bergið, virkilega skemmtileg spa stemmning þar. Útgengi er frá baðherbergi og út á sólpall. Einnig er glæsilegt ný-uppgert þvottahús með baðherbergi þar sem flísar eru á veggjum og gólfi.


Garður er mjög fallegur með háum trjám og glæsilegri hellulögn. Tvö hellulögð bílaplön eru við húsið. Einnig eru stæði á móti húsinu fyrir 6-7 bíla.
 
Húsið er á tveimur fastanúmerum samkvæmt þjóðskrá Íslands.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected]  löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík