Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 64,3 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af svalagangi á 1. hæð við Gullengi 33 í Grafarvogi. Birt stærð eignarinnar er 64,3 m2, þar af íbúð 57,8 m2 og geymsla 6,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, svefnherbergi, gluggalaust herbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Svalir í vesturátt. Bílastæði merkt íbúðinni er framan við hús.
Frábær staðsetning, stutt frá leik- grunn- og framhaldsskóla, verslunum í Spönginni, íþróttum og afþreyingu í Egilshöll og golfvelli GR við Korpúlfsstaði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Gangur er með með parketi á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Gluggalaust herbergi er með parketi á gólfi. Er í dag notað sem vinnuaðstaða. Er ekki á teikningu er því hægt að taka það niður og stækka stofuna aftur.
Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir í vesturátt Í eldhúsi er hvít innrétting með miklu skápaplássi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt, með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Baðherbergi var uppgert fyrir ca 5 árum.
Sérgeymsla með hillum er í kjallara. Skráð 6,5 m2
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í sameign í kjallara.
Verð kr. 58.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.