Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
323,2 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt og mikið endurnýjað 323 fm einbýlishús miðsvæðis í Reykjavík. Húsið er teiknað af arkitektastofu Gísla Halldórssonar árið 1966. Árið 1996 var húsið endurhannað og stækkað og var sú breyting í höndum arkitekta hjá Stúdíó Granda. Húsið hefur að stórum hluta verið endurnýjað að innan með afar vönduðum hætti og af mikilli virðingu fyrir upprunalegri hönnun og anda hússins. Vandað, gegnheilt Iroko parket sem lagt er í fiskibeinamynstri setur sterkan svip á eignina. Glæsilegt, sérsmíðað eldhús sem hannað var af Rut Káradóttur, lýsingarhönnun frá Lumex, glæsileg baðherbergi sem eru marmaralögð í hólf og gólf, bjartar og rúmgóðar stofur með fallegum arni, mjög rúmgóð hjónasvíta og fallegur garður með nýlögðum viðhaldsfríum palli og skjólveggjum. Falleg aðkoma er að húsinu og setur veglegt vegglistaverk eftir Lilju Pálmadóttur þar punktinn yfir i-ið.

Eignin er að mestu á einni hæð og skiptist í forstofu, eldhús, stofur, hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, þrjú önnur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Aðkoma: Bílaplan og göngustígur að inngangi er lagt í bland með rauðum steini, viðhaldsfríu pallaefni og tilhöggnum granítsteini.
Forstofa/hol: Við inngang er rúmgott anddyri með lokuðu fatahengi og gestasnyrtingu. Þar er mjög fallegt steinlagt, slípað gólf úr graníti, sem tekur við af samskonar granítsteini í gangstíg að húsinu. Sjónsteypa í lofti og gólfhiti. 
Gestasnyrting: Mjög fallegt með salerni og frístandandi handlaug og blöndunartækjum frá Burlington. 
Eldhús: Glæsilegt eldhús með vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum úr svartbæsaðri eik. Eldhús var hannað af Rut Káradóttur. Í eldhúsinu er tækjaskápur, innfelld uppþvottavél frá Miele og tveir innfelldir kæli- og frystiskápar frá Siemens. Afar fallegur, gegnheill Statuario marmari er á borðum frá S. Helgasyni og eru eldhústækin frá Miele. Tvöfaldur ofn er í vinnuhæð og er annar ofnanna örbylgjuofn/blástursofn. Öll tæki eru keypt í Eirvík. Gólfhiti er í eldhúsi.
Borðstofa: Björt og falleg með stórum gluggum. Ofnar í flestum rýmum eru faldir í gólfi með rist yfir.  
Stofa: Mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum. Fallegur arinn prýðir rýmið. Útgengi úr stofu á rúmgóðan suðurpall.
Sjónvarpsherbergi: Úr holi er gengið inn í rúmgott og bjart sjónvarpsherbergi sem einnig er lagt gegnheilu Iroko parketi. Rýminu er lokað af frá stofu með stórri flekahurð. Þessu rými má breyta í 1-2 svefnherbergi með einföldum hætti. 
Hjónasvíta 1: Hjónasvítan er mjög björt og rúmgóð með góðu fataherbergi og veglegu baðherbergi. Innréttingar í fataherbergi eru sérsmíðaðar úr svartbæsaðri eik. Útgengi úr hjónasvíta út á pall.
Baðherbergi 1 (innan hjónasvítu): Glæsilegt endurnýjað baðherbergi er innan hjónasvítu. Mjög fallegar, gegnheilar marmaraflísar eru á gófli og veggjum, stór walk-in sturta með innfelldum tækjum og upphengdu Duravit salerni. Gegnheill Statuario marmari er á borðum frá S. Helgasyni eins og í eldhúsi. Gólfhiti er á baðherbergi og góður, opnanlegur gluggi með sandblásnu gleri. 
Svefnherbergi 2 og 3: Frá forstofu er parketlagður stigi upp á efri hæð í viðbyggingu sem byggð var ofan á bílskúr 1996. Arkitektar viðbyggingar voru Stúdíó Granda. Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum og gegnheilu, mahogny parketi á gólfum. Framan við svefnherbergin er hol með lítilli, sérsmíðaðri eldhúsinnrétting með íslensku grágrýti á borðum. Einnig er þar barborð með grágrýti. Útgengi er úr holi út á glæsilegar, steyptar útsýnissvalir sem vísa til suðurs með nýlögðu, viðhaldsfríu pallaefni. 
Baðherbergi 2: Er staðsett í viðbyggingu. Hefur verið endurnýjað að hluta með fallegum marmaramósaík flísum. Upphengt salerni og walk-in sturta. Stór grágrýtisfleki stúkar sturtuna af. Sama grágrýti er á borðum innréttingar sem var sérsmíðuð 1996 en hefur verið sprautulökkuð.    
Þvottahús: Inn af forstofu er rúmgott þvottahús með nýrri innréttingu og útgengi út í bakgarð. 
Herbergi: Staðsett inn af þvottahúsi. 
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr frá forstofu. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem tvö stór herbergi, annað nýtt sem svefnherbergi, hitt sem tómstundarými. Á gólfum er gólfdúkur. Auðvelt er að breyta bílskúrnum aftur í upprunaleg horf. Zink klæðning er á bílskúrshurð og þaki viðbyggingar. Tvö bílastæði eru fyrir framan hús. Snjóbræðsla er bæði fyrir framan bílskúr og undir gönguleið að húsi. 
Garður: Afar fallegur og sólríkur garður með pöllum og skjólveggjum. Útgengi er á sólpall frá stofu og hjónasvítu. 

Framkvæmdir og viðhald af hálfu núverandi eigenda á undanförnum 2 árum:
Frárennslislagnir endurnýjaðar innan sökkuls.
Skipt um pappa og einangrun á þaki stofu og þaksvala.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og forhitari settur upp fyrir allt neysluvatn utan viðbyggingar. Lagnagrind uppfærð og skipt um dælur í lagnaherbergi.
Múrviðgerðir, sprunguviðgerðir og inndæling á öllum múr utanhúss.
Húsið er nýmálað að innan og utan.
Rafmagntafla endurnýjuð og nýtt efni dregið í dósir. Wifi sendar settir upp. Pljed stýring á ljósum.
Gluggar, gler og glerlistar endurnýjað að hluta og eftir þörfum.
Eldhús, baðherbergi og þvottahús endurnýjuð. 
Parket pússað og lakkað.
Ofnhitakerfi uppfært og ofnalagnir endurnýjaðar að hluta. Danfoss ofnhitastýrikerfi.
Innihurðir sprautulakkaðar.
Pallur endurnýjaður, tré fjarlægð og grasflatir endurtyrfðar að hluta.
Útiljós endurnýjuð með Louis Poulsen og er lýsing á sólúri.
Ný hurð á útigeymslu.

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða [email protected]
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða [email protected]
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kjartan Hallgeirsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. nóv. 2024
168.650.000 kr.
160.000.000 kr.
10101 m²
15.840 kr.
1. nóv. 2017
81.900.000 kr.
115.000.000 kr.
323.2 m²
355.817 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kjartan Hallgeirsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík