Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Holtsvegur 10

210 Garðabær

83.900.000 kr.

773.272 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2354270

Fasteignamat

87.500.000 kr.

Brunabótamat

74.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
108,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 27. júlí 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Holtsvegur 10, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 02 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. júlí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stórum svefnherbergjum, aukinni lofthæð og skjólgóðum garðsvölum í nýlegu lyftuhúsi (bygg. ár 2017) að Holtsvegi 10, í Urriðaholti Garðabæ. Eignin er skráð 108,5m2 að stærð, þar af 100,1m2 íbúðarými og 8,4m2 geymsla, og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, tveimur stórum svefnherbergjum og baðherbergi auk sérgeymslu í kjallara og sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Eldhús og stofa eru í opnu alrými með útgengi á sólríkan og skjólgóðan sérafnotareit til vesturs. Falleg og vel skipulögð íbúð í nýlegu hverfi. Ath. Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings.

Nánari lýsing.

Anddyri: Þrefaldur fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting (Formus), góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, mikið skápapláss, innfelld uppþvottavél og ísskápur, eyja með rúmgóðum skúffum, helluborði og gufugleypi. 
Stofa: Björt og rúmgóð með, gólfsíðum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit eignar. 
Svefnherbergi: 18,7 fm að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi.
Svefnherbergi: 13.6 fm að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggi til vesturs, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerskilrúmi, vegghengt WC og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: Í anddyri eru flísar en teppi í stigahúsi. Í kjallara er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Fyrir framan hús er sameiginlegur garður, hiti í stéttum og á bílastæði er sameiginleg rafhleðslustöð. 

Innréttingar voru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur og voru sérsmíðaðar af Formus. 

Falleg og vel skipulögð eign í nýlegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]

                                                                          
 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. jún. 2018
31.250.000 kr.
48.400.000 kr.
108.5 m²
446.083 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík