Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
86,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Lækjarbakki, 805 Selfoss í landi Búrfells. Lokað svæði (rafmagnshlið), glæsilegt útsýni.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús í Lækjarbakka í landi Búrfells og Grímneshreppi. Um er að ræða 86,2 fm sumarhús auk millilofts. Milliloftið er skráð að hluta en er ca. 40 fm að gólffleti.  Í þessu húsi er hitaveita (lokað ofnakerfi).  Gjöfull er tendur við neysluvatn hússins sem þýðir að aukinn þrýstingur er á vatni.
 
Fallegt sumarhús sem stendur á 6.928 fm eignarlóð í landi Búrfells í Grímsnes-og Grafningshreppi. Húsið er skráð samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun 86,2 fm. Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi, geymslu, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús á jarðhæð auk rúmgóðs svefnlofts.
 
Dúkur eru á gólfum í forstofu, baði, geymslu og eldhúsi en parket á stofu. Falleg viðarinnrétting er í eldhúsi með vönduðum tækjum. Eldhús er opið inn í stofu með góðri lofthæð. Stofa með parketi á gólfi og kaminu. Útengi er er út á suður sólpall úr stofunni. Baðherbergi er rúmgott, með innréttingu og sturtuklefa. Húsið er er vel um gengið.

Þetta er glæsilegt sumarhús með miklu útsýni. Góð geymsla þar sem gengið er inn af palli en þar eru inntök hússins. Góð aðkoma er að húsinu og næg bifreiðastæði. Búið er að planta talsvert af trjám.

Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið).

Möguleiki að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni. 
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 50.000 á ári. 

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss ogKersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í ca. 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: [email protected]
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: [email protected]
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: [email protected]

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. 

img
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Heimir Hafsteinn Eðvarðsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. okt. 2020
27.550.000 kr.
26.500.000 kr.
86.2 m²
307.425 kr.
6. júl. 2017
21.550.000 kr.
23.000.000 kr.
86.2 m²
266.821 kr.
17. ágú. 2006
13.328.000 kr.
18.800.000 kr.
86.2 m²
218.097 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Heimir Hafsteinn Eðvarðsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.