Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 5. og efstu hæð í lyftuhúsi ásamt bílskúr og tveimur bílastæðum í lokaðri bílageymslu við Efstaleiti 11 í Reykjavík. Eignin er samtals skráð 135,3 m2, þar af íbúð 94,4 m2, geymsla 11,2 m2 og bílskúr 29,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í sameign í kjallara. Bílskúr er í bílakjallara og tvö bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Mjög vönduð eign með fallegum innréttingum, steinn á borðum, fiskibeinaparket á gólfum, gólfsíðir gluggar og svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Frábær staðsetning, miðsvæðis í Reykjavík, skammt frá allri helstu þjónustu.
**Bílskúr og tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni**
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fiskibeinaparketi á gólfi og fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa er opin inn í eldhús, fiskibeinaparket á gólfi, stórir gólfsíðir gluggar á tvo vegu og útgengt á rúmgóðar suður svalir með gler handriði og glæsilegu útsýni.
Eldhús er með fiskibeinaparketi á gólfi og vandaðri innréttingu. Stór eyja, steinn á borðum og stækkað spanhelluborð með innfelldum gufugleypi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fiskibeinaparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Svefnherbergi 2 er með fiskibeinaparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Vönduð innrétting með stein á borði, "walk-in" sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingu með vaski. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Bílskúr er innan bílakjallara, skráður 29,7 m2. Innangengt í sameign, góð innrétting með vask, flísar á gólfi, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð á sér mæli fyrir framan bílskúr og internet tenging.
Bílastæði í bílakjallara eru tvö, sérmerkt eigninni, annað fyrir framan bílskúr og hitt við innganginn inn í bílakjallarann.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 11,2fm.
Hjóla og vagnageymslur eru í sameign.
Sameiginlegur garður með leiktækjum.
Verð kr. 132.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.