Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
222,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Suðurmýri 58, 170 Seltjarnarnes. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 28. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Kristján Baldursson kynna í einkasölu: 

Nýlegt og fallegt, vel skipulagt 222,2 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi á tveimur hæðum að meðtöldum 38,2 fermetra innbyggðum bílskúr og stórum svölum með heitum potti.

Nánari lýsing:
Eignin er á tveimur hæðum. Komið er inn í rúmgóða forstofu á neðri hæðinni og þar inn af er eitt svefnherbergi. Einnig eru tvö önnur svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi með baðkari og sturtu á neðri hæðinni ásamt tvöföldu þvottahúsi og stórum bílskúr (innangengt).
Á efri hæðinni er eldhús með stórri eyju, stofa, borðstofa og hjónaherbergi með sér fata- og baðherbergi með sturtu.
Út frá stofunni er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir til suðurs með heitum potti (teiknuð hefur verið svalalokun). 
Gólfhiti er á báðum hæðum.
Stórir og fallegir gluggar eru í húsinu. 
Lóðin var hönnuð af Birni landslagsarkitekt og afmarkast hún bakatil með steyptum garðvegg. Hlið er á veggnum Eiðistorgs megin svo auðvelt er að koma aftan að húsinu þar sem er annar inngangur í húsið.

Á þaki er einangrun og dúkur frá Makron og þar ofan á er svo sjávarmöl notuð sem farg. Þakkanturinn er byggður úr timbri með heitgalvanhúðuðum plötum.
Niðurföllin eru úr áli. 
Á svölunum er einangrun úr harðpressari ull og þar ofan á er asfaltdúkur.
Gluggarnir eru úr timbri með álkápu og steyptir að hluta og eru frá Gluggasmiðjunni. Opnanleg fög eru úr áli sem og rennihurð út á svalir.

Húsið var málað árið 2021. 

Eignin er staðsett í hjarta bæjarins þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni og bæjarmörkin við Vesturbæinn í Reykjavík eru bakvið húsið.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 867-3040 eða á [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2017
79.150.000 kr.
86.000.000 kr.
222.2 m²
387.039 kr.
18. feb. 2016
50.150.000 kr.
62.500.000 kr.
222.2 m²
281.278 kr.
14. apr. 2014
47.150.000 kr.
27.000.000 kr.
222.2 m²
121.512 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone