Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Austurbrú 14 íbúð 209

600 Akureyri

64.700.000 kr.

993.856 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531341

Fasteignamat

52.650.000 kr.

Brunabótamat

44.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
65,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Austurbrú 14 íbúð 209 - Glæsileg tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í nýbyggingu - Stærð 65,1 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, [email protected], 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Smelltu hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.

Glæsileg og einstaklega vel hönnuð íbúð þar sem vandað efnisval, falleg hönnun og þægilegt skipulag fara fullkomlega saman.

Við inngang tekur á móti þér bjart og opið anddyri með góðum fataskáp.

Hjarta íbúðarinnar er fallegt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellda og einstaklega vistlega heild. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð með eldhúseyju sem er klædd vönduðum kvartssteini og útbúin spanhelluborði. Innréttingin er einstaklega vönduð með kvartssteini á borðplötum, innfelldum vaski og bakaraofni í þægilegri vinnuhæð. Allar skúffur og skápar eru með ljúflokum og falleg innfelld lýsing frá Lumex undirstrikar nútímalegt og fágað yfirbragð rýmisins.

Frá stofu er útgengt út á skjólgóðar suðursvalir þar sem njóta má sólar og útiveru í rólegu og notalegu umhverfi.

Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með góðum fataskáp sem býður upp á mikið geymslupláss.

Baðherbergið er einstaklega glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með vönduðu efnisvali. Þar er falleg innrétting frá Parka með kvartssteini á borðplötu, rúmgóð sturta með glerskilrúmi og upphengt salerni sem gefur rýminu nútímalegt yfirbragð. Þvottaaðstaðan er snyrtileg með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt kvartssteini á borðplötu sem skapar góða vinnuaðstöðu.

Með íbúðinni fylgir rúmgóð 6,8 fm sérgeymsla í sameign.

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Áshamar 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone