Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Austurbrú 14 íbúð 110

600 Akureyri

108.300.000 kr.

938.475 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531324

Fasteignamat

79.750.000 kr.

Brunabótamat

78.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
115,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Austurbrú 14 íbúð 110 - Glæsileg þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýbyggingu - Stærð 115,4 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, [email protected], 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Smelltu hér til að skoða lausar íbúðir og verkefnið.

Glæsileg og einstaklega vel skipulögð íbúð þar sem vandaður frágangur, gæða efnisval og birtuflæði setja svip sinn á heimilið.
Strax við inngang tekur á móti gestum falleg forstofa með fataskáp.
Til hægri frá forstofu er rúmgott barnaherbergi með góðum skápum og hjónaherbergi sem býður upp á gott skápapláss og þægilegt rými.
Baðherbergið er stílhreint og fullflísalagt í hólf og gólf með fallegri Parka innréttingu, kvartsstein á borðplötu, upphengdu salerni og rúmgóðri sturtu með glerskilum.

Hjarta heimilisins er hið glæsilega og einstaklega rúmgóða alrými sem sameinar eldhús, borðstofu og stofu á einstaklega fallegan hátt. Þar njóta sín stórir gluggar og ríkuleg náttúruleg birtan sem streymir inn frá þremur áttum. Vandað eldhús er með fallegri innréttingu, kvartssteini á borðplötum og eldhúseyju með spanhelluborði. Bakaraofn er í þægilegri vinnuhæð, vaskur er innfelldur og allar skúffur og skápar eru með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex gefur rýminu nútímalegan og fágaðan svip.
Fyrir framan eldhúseyjuna opnast björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi á verönd sem snýr að fallegum hótelgarði og skapar notalega og friðsæla umgjörð fyrir útivist.
Þvottahús er sérlega snyrtilegt, flísalagt með sérsmíðuðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara auk borðplötu úr kvartssteini.

Íbúðin nýtur mikillar birtu með gluggum á þrjá vegu sem skapa létta og einstaka stemningu um allt heimilið.
Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu sem og sérgeymsla, 12,9 m², í sameign. 

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Áshamar 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
 

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone