Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Upplýsingar
svg
Byggt 1984
svg
191,9 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Fiskakvísl 5. 5-6 herbergja íbúð á 2. hæð ásamt risi og rúmgóðum bílskúr til sölu í 110 Reykjavík
Íbúðin er í Ártúnsholtinu og er vel skipulögð. Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi og fjögur eða mögulega 5 svefnherbergi. Geymsla og bílskúr á jarðhæð.
Samtals er eignin, 191,9 fm, íbúð á 2. hæð er 123,4 fm, rishæð er skráð 29 fm en er stærri að grunnfleti og bílskúr og geymsla á jarðhæð sem er samtals 39,5 fm.
Aðeins 4 íbúðir í stigaganginum, tvær á hverri hæð. Hiti í útitröppum og rúmgott bílastæði fyrir framan bílskúr sem fylgir íbúðinni.

Nánari lýsing
Forstofa með fatahengi og parket á gólfi.
Þvottahús er inn af forstofu með flísum á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél. Vaskur.
Rúmgott hol og þaðan er gengið í herbergi, stofur, baðherbergi og eldhús.
Eldhús með útsýnisglugga, innrétting með bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými með stórum gluggum. Útgengi á stórar suðursvalir. Parket á gólfum.
Hjónaherbergi er með stórum glugga, útgengi á suðursvalir, góðum skápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, mjög rúmgóð og bæði með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari og sturtuaðstöðu. Hvítar flísar í hólf og gólf. Handklæðaofn.
Gengið upp stiga uppá rishæð. Á rishæðinni er hol og herbergi og er hægt er að breyta skipulagi. Gott geymslupláss er undir súð, ca 2ja metra breiðar. Flísar á gólfi rishæðar. Fjórir Velux þakgluggar.
Sérgeymsla á jarðhæð er 5,4 fm.
Bílskúr er 34,1 fm. með heitu og köldu vatni og sjálfvirkum hurðaropnara.
Sameiginlegt þurrkherbergi á jarðhæð. Þá fylgir íbúðinni skápur í sameign, mjög góður fyrir útiföt ofl.
Sameignin er snyrtileg og hefur verið vel við haldið.

Framkvæmdir og viðhald húss síðustu ár:
2020: Sameign máluð og teppi endurnýjuð í stigagangi.
2022: Útitröppur við anddyri endursteyptar og lagnir í hitalögn endurnýjaðar.
2023: Þakframkvæmdir: Endurnýjun á þakklæðningu, þakgluggum, klæðningu á þakkant, þakrennum, þaktúðum og snjógildrum.
2025: Gluggar og bílskúrshurðir málaðar.

Eftirsótt staðsetning í góðu fjölskylduhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla innan hverfisins. Einnig er stutt í útivistarsvæði Elliðaárdals þar sem frábærar hjóla- og gönguleiðir eru í næsta nágrenni. Hverfið er vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins og stutt í helstu samgöngur. 

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík